Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Eyþór J. Hallsyni á Hofsósi. Meðfylgjandi er umslag, stílað á Valdemar Guðmundsson á Bólu.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar læknisbústað á Hofsósi. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar sjúkraherbergi á Hofsósi. Dálítil ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Fundargerðabækurnar eru sex og í misjöfnu ástandi og misstórar. Þær eru frá árunum 1917 - 1984. Blöðin nokkuð trosnuð og rifin eða blöð hafa losnað. Allar handskrifaðar og eru merktar með Gjörðabók Ungmennafélags Höfðstrendinga eða Fundagerðabók U.M.F.H. Í þessum bókum eru fundirnir útlistaði og greinilegt er að miklu er áorkað til samfélagsins og mikið og gott ungmennastarf unnið.
Ýmis gögn Ungmennafélagsins Höfðstrendinga eru í þessu safni s.s bókhald, bréfasafn, fundagerðabækur, sveitablaðið Félaginn 2 árg, ( D-A-c ). Harðspjaldabók um leikritið Henrik og Pernille eftir Ludvig Holberg, Baron of Holberg (3 December 1684 – 28 January 1754) skrifað 1724, en þýðandi Lárus Sigurbjörnsson ( D-A-a ) ásamt fleiri áhugaverðum gögnum. Gögnin eru flokkuð í hverju skipulagi eftir ártali, elstu gögn neðst en þau yngstu efst.
Gögn frá U.M.F.H ( sem inniheldur líka gögn frá Tindastóll sunddeild, Leikfélag Hofsósi, KSÍ ) U.M.S.S, Í.S.Í, U.M.F.Í, Gögni eru í misjöfnu ástandi, blettótt og einhver rifin og nokkuð um viðkvæm eldri blöð, öll þó læsileg. Gögni eru flokkuð eftir ártali, elstu neðst og yngstu efst.
Þrjár bækur í góðu ástandi og pappírsgögn í viðkvæmu ástandi. Samkvæmt gögnum er talið að félagið hafi verið stofnað 1938 og sameinast svo samkvæmt lögum Búnaðarfélagi Íslands 24.04.1974 og eignum félagsins ráðstafað þannig að sjóðurinn verði í vörslu hreppsnefndar en vöxtum hans varið til að verðlauna snyrtimennsku í búskap og umgengni á félagasvæðinu.
Gögn Ungmennafélags Geisli / Bindindisfélagið Tilreyndin, er ein askja sem inniheldur fimm bækur um fundargerðir, lög, og bókhaldsgögn, og ein örk með ýmsum skjölum frá félaginu.
Guðmundur Einarsson verslunarstjóri á Hofsósi- kona hans Jóhanna Stefánsdóttir og börn þeirra talið frá vinstri: Kristín Ingveldur Guðmundsdóttir- Stefán Jóhann Guðmundsson og Jórunn Guðmundsdóttir.
Anna Erlendsdóttir og Stefanía Erlendsdóttir ásamt eiginmönnum og börnum. Þær voru dætur Erlendar verslunarstjóra í Grafarósi og Hofsósi. Anna var gift Jóni A. Ólafssyni verslunarmanni á Patreksfirði. Stefanía var gift Aðalsteini P. Ólafssyni, verslunarmanni á Patreksfirði.