Verðlaunahafar fyrir veggspjald, sem unnið var í umferðarátaki sem umferðanefnd Sauðárkróks, lögreglan, tryggingarfélögin og grunnskólinn á Sauðárkróki stóðu fyrir 1997. Aftari röð frá vinstri, Arnar Freyr Frostason (1988-), Snævar Örn Jónsson (1988-), Stefanía Inga Sigurðardóttir (1988-), Jóhanna Ey Harðardóttir (1988-). Fremri röð frá vinstri Skapti Ragnar Skaptason (1988-), Katrín Sveina Björnsdóttir (1988-).
Þessar stúlkur Svandís Ósk Svanlaugdóttir og Hrafnhildur Erlingsdóttir héldu hlutaveltu í september 1993 og létu ágóðann renna til Hjúkrunar- og dvalarheimilis aldraðra á Sauðákróki.
Kofabyggð vestan við sjúkrahúsið á Sauðárkróki sumarið 1984. Edda Lúðvíksdóttir (1955-) t.v. við kofann. Íris Baldvinsdóttir (1965-) með gítar og Guðfinna Gunnarsdóttir (1942-2012) situr með barn.
Útibú Búnaðarbankans á Sauðárkróki tók í notkun nýtt og endurbætt húsnæði við Faxatorg í mars 1998. Af því tilefni var efnt til karnivalhátíðar þar sem Snæfinnur og Snædís heilsuðu upp á unga fólkið.
Fermingarfræðsla á Löngumýri árgangur 1975. Nemendur frá Varmahlíð og Blönduósi. Fullorðnu mennirnir eru t.v. sr. Ólafur Hallgrímsson á Mælifelli og t.h. sr. Árni Sigurðsson á Blönduósi.
Krakkar á Sauðárkróki í Friðarhlaupi sem fór kringum landið sumarið 1987. F.v. Tveir óþekktir, Rúnar Arnarson (1974-), Ingi Freyr Ágústson (1975-), Ögmundur Arnarsson (1973-), Ómar Sigmarsson (1976-), óþekktur, Smári Björnsson (1975-) og lengst t.h. Atli Björn Þorbjörnsson (1976-).
Sýningin "Konur á Króknum" sem fimm kvennasamtök settu upp í Barnaskólanum vorið 1997 en þar var sýnd vinnuaðstaða húsmæðra áður fyrr. Börnin eru Halldór Örn Kristjánsson (1991-) og Björg Árdís Kristjánsdóttir (1987-).
Fæðingar óvenju margar á Sauðárkróki í ágúst árið 1999, Kristjana Elísabet Jónsdóttir (1968-) með son sinn Jón Grétar Guðmundsson. Helga Hauksdóttir (1963-) með son sinn Sigurð Inga Hjartarson. Sólveig Arna Ingólfsdóttir (1977-) með dóttur sína Katrínu Evu Andrésdóttur. Erla Valgarðsdóttir (1964-) með son sinn Ísak Róbertsson. Edda María Valgarðsdóttir (1967-) með dóttur sína Ástrósu Evu Guðnadóttur.
Blaðagrein í Feyki um hvernig gera má Borgarsandinn að skemmtilegu útivistarsvæði. Frá vinstri Þór Sigurðsson og eiginkona hans Herdís Stefánsdóttir ásamt Þórdísi dóttur þeirra og með þeim er Katrín Ingimundardóttir.
Öskudagur 1993, Aftari röð í lopapeysu Elísabet Kjartansdóttir (1980-) með hvíta hattinn er Fríður Finna Sigurðardóttir(1980-), spurning um Völu Hrönn Margeirsdóttur (1987-) í fremri röð lengst t.h.
Börn á Sauðárkróki sem héldu hlutaveltu í júlí 1985. F.v. Arna Dröfn Björnsdóttir (1975-), Ragnar Páll Árnason (1976-), Dagur Jónsson (1976-) og Atli Björn Þorbjörnsson (1976-).
Leikskólabörn á Sauðárkróki. Frá vinstri: (Ingunn Sandra Arnþórsdóttir), Alrún Ösp Herudóttir, Fjóla Sigríður Stefánsdóttir og Sigfús Arnar Benediktsson. Hin eru óþekkt.
Hópur barna á skautum á Skagaströnd. Talið frá vinstri: Tinna Gunnarsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Þórður Óskarsson, Stefán Agnar Gunnarsson. Fyrir framan er Katrín Björk Guðmundsdóttir.
Króksmót. Ingvar Magnússon (1960-) þjálfari t.v. í rauðri peysu og sennilega Ómar Braga Stefánsson t.h. Á bak við við Ingvar t.h. eru Stefán Logi Haraldsson og Jón Arnar Magnússon.
Fimm stúlkur sem héldu tombólu til styrktar Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki í ágúst 1987. Þær eru f.v. Þóra Björk Þóhallsdóttir, Þórdís Ósk Rúnarsdóttir, Steina Margrét Finnsdóttir, Emma Sif Björnsdóttir og Þorgerður Eva Þórhallsdóttir.
Tilg. Flösku- og dósasöfnun. Tekið við Kirkjutorg á Sauðárkróki allar stúlkurnar fæddar árið 1980. Kristrún og María Sigurðardætur eru í bláu úlpunum, Vala Frímannsdóttir á milli þeirra og Margrét Erla Haraldsdóttir.
Unglingavinna á Sauðárkróki 1987. Þökulagning í Hlíðarhverfi. Frá vinstri, Ingvar Ormsson (1974-), Kristján Kristjánsson (1973-) Sveinn H. Guðmundsson og Valdimar Birgisson (1974-).
Tvíburabræðurnir Ingimundur og Sigvaldi frá Svanshóli í Bjarnarfirði. Sigvaldi Ingimundarson Fæddur í Strand. 29. janúar 1944 Látinn í Reykjavík 17. maí 2010 Íþróttakennari í Reykjavík. Ingimundur Ingimundarson Fæddur á Svanshóli í Bjarnarfirði - Strand. 29. janúar 1944
Sundfólk UMSS á Norðurlandsmóti á Akureyri 1954. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir - Guðný Dóra Rögnvaldsdóttir - Svanborg Guðjónsdóttir - Ágústa Jónsdóttir - Herdís Stefánsdóttir - Ingibjörg Harðardóttir - Þorbjörn Árnason - fyrir framan hann er Anna Katrín Hjaltadóttir og þar fyrir framan er María Valgarðsdóttir - Sveinn Marteinsson - fyrir fram hann er Helga Friðriksdóttir - Birgir Guðjónsson (1948-) Jón Björn Magnússon - Birgir Hans Málfreðsson.
Sundfólk UMSS. Frá vinstri Guðrún Pálsdóttir - Guðný Dóra Rögnvaldsdóttir - Svanborg Guðjónsdóttir - Herdís Stefánsdóttir - Ágústa Jónsdóttir - Hilmar Hilmarsson - Ingibjörg Harðardóttir - Þorbjörn Árnason - fyrir framan hann er Anna Katrín Hjaltadóttir og þar fyrir framan er María Valgarðsdóttir - Sveinn Marteinsson fyrir fram hann er Helga Friðriksdóttir - Birgir Guðjónsson (1948-) Jón Björn Magnússon - Birgir Hans Málfreðsson. (Ólöf Pálmadóttir fyrir framan Jón Björn)