Showing 3167 results

Archival descriptions
Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn English
Print preview Hierarchy View:

2165 results with digital objects Show results with digital objects

Kladdar 1941-1947

Kladdar frá árunum 1941-1947 þar sem Guðjón merkir við viðveru nemenda sinna, veikindi, leyfi og fleira.
TRÚNAÐARGÖGN!

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Kaupfélag Skagfirðinga 1954-1991

Ýmis gögn tengd starfsemi Kaupfélagi Skagfirðinga sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar. Guðjón var endurskoðandi Kaupfélags Skagfirðinga til fjölda ára, sat í stjórn Menningarsjóðs KS í mörg ár og var formaður fræðuslunefndar þess um skeið.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

ÍSÍ, UMFÍ, SSÍ og FRÍ

Ýmis gögn tengd UMFÍ, ÍSÍ, FRÍ, SSÍ, KSÍ og fleiri íþróttafélögum og samböndum sem komu úr fórum Guðjóns Ingimundarsonar og tengjast starfi hans innan íþróttahreyfingarinnar. Guðjón var varaformaður Ungmennafélags Íslands 1965-1983 og í sambandsráði Íþróttasambands Íslands um árabil.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Iðnaðarmannafélag Sauðárkróks

Þrjár fundargerðarbækur Iðnaðarfélags Sauðárkróks, skrá yfir réttindabréf félagsmanna, óskir um inngöngu í félagið, ýmis minnisblöð, upp, viðskiptayfirlit, uppkast að bréfi, auglýsingar og gjafabréf.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Hugleiðingar um skipulag íþróttasvæðisins

Hugleiðingar Guðjóns um skipulagsmál íþróttasvæðisins, þá sérstaklega gagnrýni á þær fyrirætlanir sveitarstjórnar að hafa mön við sundlaugina sem Guðjón sjálfar vísar í sem "Manarmálið".

Efni hugleiðinganna: Samþykktir um skipulag og mönina, tillaga um sundlaug framtíðarinnar, íbúafundur í mars 2003, efnislegar spurningar, niðurstaða um gang mála og sveitarstjórnarfundur í mars 2003.

Heysala 1949

Reikningar og bréf vegna heysölu úr Skagafirði og vestur á Strandir árið 1949 sem Guðjón virðist hafa haft milligöngu um. Heyið virðist hafa farið í Kaldrananeshrepp og í Ófeigsfjörð. Töluvert af heyinu virðist hafa komið frá Reynistað en einnig frá öðrum bæjum. Heyið var flutt vestur með Skjaldbreið.

Héraðsmót UMSS 1960

Héraðsmót UMSS á Sauðárkróki í ágúst 1960. Meðal annars greint frá andláti Péturs Hannessonar og hans minnst sem eins þeirra sem ,,klufu strauminn á fyrstu dögum ungmennafélaganna hér í héraðinu..."

Heimsókn Kristjáns Eldjárns forseta

Ávarp sem flutt var við komu forseta Íslands, dr. Kristjáns Eldjárns til Sauðárkróks og Skagafjarðar í ágúst 1969. Með liggur þakkarbréf frá Kristjáni sem hann stílar á forseta bæjarstjórnar (Guðjón Ingimundarson) og barst það honum í september 1969.

Heimildir um sundkennslu í Skagafirði

Margvíslegar heimildir frá mismunandi aðilum um sundkennslu í Skagafirði, m.a. má finna þarna heimildir frá Jóni Sigurðssyni á Reynistað, Hannesi Hannessyni á Melbreið, Páli Sigurðssyni á Hofi, og Ingibjörgu Jóhannsdóttur á Löngumýri.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Heimildir frá Jóni Sigurðssyni

Heimildir um sundkennslu í Skagafirði frá Jóni Sigurðssyni á Reynistað, bæði heimildir sem Jón hefur tekið saman sjálfur og jafnframt bendir hann Guðjóni Ingimundarsyni á hvar sé best að leita heimilda um málefnið.

Heimild frá Krisjáni Árnasyni

Heimild frá Kristjáni Árnasyni um sundkennslu í Skíðastaðalaug (við Varmalæk) og í Steinstaðalaug. Kennari við Skíðastaðalaug var Ólafur Guðmundsson í Hamarsgerði. Bætt er við í lok samantektarinnar að fyrsta stúlkan sem hafi lært sund í Steinstaðalaug hafi verið Sigríður Daníelsdóttir kona Kristjáns I. Sveinssonar.

Heimild frá Ingibjörgu Jóhannsdóttur

Heimildir frá Ingibjörgu Jóhannsdóttur á Löngumýri um sundkennslu í Skagafirði en afi hennar Ólafur Guðmundsson í Hamarsgerði var með þeim fyrstu sem kenndi sund í héraðinu. Í bréfi þessu fjallar Ingibjörg mest um Reykjalaug í Tungusveit.

Guðjón Ingimundarson: Skjalasafn

  • IS HSk N00279
  • Fonds
  • 1873-2008

Einkaskjalasafn og ljósmyndasafn Guðjóns Ingimundarsonar.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Greinargerðir

Greinargerðir frá Fræðslunefnd K.S. til aðalfundar Kaupfélags Skagfirðinga 1977 og 1978.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Greinargerð atvinnumálanefndar 1952

Greinargerðin er nokkuð ítarleg og þar er eftirfarandi tekið til umfjöllunar: staðbundið atvinnuleysi, atvinnutæki og iðnað, fiskibáta, landbúnað, hafnarmál og fleira. Undir greinagerðina rita Guðjón Sigurðsson og Magnús Bjarnason.

Results 426 to 510 of 3167