Sýnir 608 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Only top-level descriptions Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)**
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

2 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Ólína Ingibjörg Björnsdóttir og Guðjón Sigurðsson: skjalasafn

  • IS HSk N00492
  • Safn
  • 1900-1995

Bréfa og ljósmyndasafn úr eigu Guðjóns Sigurðssonar bakara og Ólínu Ingibjörgu Björnsdóttur konu hans, safnið samanstendur af sendibréfum og erindum m.a til þáverandi sjávarútvegsráðherra Emils Jónssonar (1963). Í safninu eru auk þess 280 pappírskópíur og ljósmyndir, hluti af þeim er úr eigu Björns (Haraldar) Björnssonar, bróður Ólínu. Safn Björns var í litlu tréboxi (gömlu vindlaboxi). Þess má geta að í tréboxinu voru tvær litlar myndamöppur með ljósmyndum af helstu kennileitum Kaupmannahafnar. Ákveðið var að halda söfnunum aðskildum og skrá myndirnar og myndamöppurnar sérstaklega.
Þegar byrjað var að fara yfir myndinar komu í ljós nokkrar myndir sem eru úr eigu Björns Björnssonar sem var tengdasonur Ólínu og Guðjóns, nokkrar af myndunum eru merktar honum og hafa liklega verið birtar í Morgunblaðinu (Björn var lengi fréttaritari blaðsins).

Ólína Ingibjörg Björnsdóttir (1903-1980)

Fiskiræktarfélag: Skjalasafn (Afh. 1947)

  • IS HSk H00024
  • Safn

Gögn er varða stofnun félags um fiskirækt fyrir vatnasvæði Héraðsvatna frá árinu 1940.

Fiskiræktarfélag fyrir vatnasvæði Héraðsvatna

Ragnheiður Dóra Árnadóttir: ljósmyndasafn

  • IS HSk N00499
  • Safn

Safn sem inniheldur 11 ljósmyndir (pappírskópíur) og 3 heillaóska skeyti til Ástrúnar Sigfúsardóttur og Árna Gíslasonar vegna giftingar þeirra þann16.02.1932 og 2 ljósmyndir sem eru innrammaðar með gulllituðum trérömmum (ekki er vitað af hverjum myndirnar eru). Safnið er allt vel varðveitt.

Ragnheiður Dóra Árnadóttir (1933-2020)

Gunnar Einarsson: Skjalasafn

  • IS HSk N00124
  • Safn
  • 1928-2000

Ljóðabálkur eftir Gunnar Einarsson í Bergskála um stórbrunann mikla á Hellulandi árið 1928. Þrjár vélritaðar síður og ein handskrifuð nafnaskrá, óvíst um upprunann og hvenær það barst safninu en greinilega er skjalið búið til eftir daga Gunnar.

Gunnar Einarsson (1901-1959)

Friðbjörn Traustason: Skjalasafn

  • IS HSk N00429
  • Safn

Gögn úr fórum Friðbjörns, annars vegar úr bréfaskóla SÍS, en hins vegar varðandi sjúkrasamlag, en Friðbjörn var lengi oddviti Hólahrepps.

Friðbjörn Finnur Traustason (1889-1974)

Niðurstöður 596 to 608 of 608