Sýnir 7828 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)** Málaflokkur
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

68 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Íslandssögupróf 1970

Íslandssögupróf, úrlausnir 13 nemenda frá árinu 1970. Úrlausnirnar eru handskrifaðar á jafnmargar pappírsarkir í folio stærð.
Með liggja prófspurningar fyrir eldri deild, sem eru vélritaðar á pappírsörk í A4 stærð.

Sólgarðaskóli

Lestrarpróf 1945

Prófúrlausnir nemenda í lestrarprófi 1945, alls 10 úr hljóðlestarprófi og 28 úr raddlestarprófi.
Útfyllt eyðublöð þar sem fram kemur nafn og aldur nemenda og árangur þeirra á prófinu.

Sólgarðaskóli

Lestrarpróf 1956

Prófúrlausnir nemenda í raddlestrarprófi 1956, alls 22 úrlausnir á útfylltum eyðublöðum þar sem fram kemur nafn og aldur nemenda og árangur þeirra á prófinu.
Með liggur eintak af lestarblaði.

Sólgarðaskóli

Málfræðipróf 1967

Prófúrlausnirnar eru á útfylltum eyðublöðum í A4 stærð, alls 7 úrlausnir. Með liggja jafnmargar úrlausnir úr bókmenntaprófi frá sama ári, ásamt eintaki af prófspurningum.

Sólgarðaskóli

Reikningspróf 1963

Prófúrlausnir nemenda á reikningsprófi 1963, útfyllt eyðublöð sem hvert um sig eru 4 síður í A4 broti, alls 15 úrlausnir.

Sólgarðaskóli

Reikningspróf 1965

Prófúrlausnir nemenda á reikningsprófi 1965, útfyllt eyðublöð sem hvert um sig eru 4 síður í A4 broti, alls 25 úrlausnir.

Sólgarðaskóli

Reikningspróf 1974

Prófúrlausnir nemenda á reikningsprófi 1974, útfyllt eyðublöð sem hvert um sig eru 4 síður í A4 broti, alls 1 úrlausn.

Sólgarðaskóli

Réttritunarpróf 1949

Úrlausnir nemenda á réttritunarprófi árið 1949. Skrifaðar á pappírsarkir í A4 stærð, alls 16 úrlausnir.

Sólgarðaskóli

Réttritunarpróf 1950

Úrlausnir nemenda á réttritunarprófi árið 1950. Skrifaðar á pappírsarkir í A4 stærð, alls 10 úrlausnir.

Sólgarðaskóli

Réttritunarpróf 1961

Úrlausnir nemenda á réttritunarprófi árið 1961. Skrifaðar á pappírsarkir í A4 stærð, alls 13 úrlausnir.

Sólgarðaskóli

Réttritunarpróf 1970

Úrlausnir nemenda á réttritunarprófi árið 1970. Skrifaðar á pappírsarkir í A4 stærð, alls 16 úrlausnir. Með liggja leiðbeiningar fyrir prófandann.

Sólgarðaskóli

Borgarhóll

Stefán Jónsson sækir um byggingarleyfi fyrir fjárhúsi og heygeymslu í landi Borgarhóls. Teikningu gerði Byggingastofnun landbúnaðarins og styrkleikateikningu gerði Sigurður Sigvaldason.
Meðfylgjandi er teikning dagsett 7. júlí 1980.

Skuggabjörg

Kristján Guðjónsson frá Skatastöðum sækir um byggingarleyfi fyrir fjárhúsbyggingu á jörðinni Skuggabjörgum. Teikningu gerði Byggingastofnun landbúnaðarins. Umsókn dagsett 29.07.1975.
Teikning fylgir ekki.

Stekkjarflatir

Sigurður Friðriksson sækir um byggingarleyfi fyrir fjósi og hlöðu á Stekkjarflötum. Teikningu gerði Teiknistofa landbúnaðarins. Umsókn dagsett 12.05.1971.
Teikning fylgir ekki.

Þormóðsholt

Tómas Lárusson sækir um byggingarleyfi fyrir heyhlöðu úr stálgrind í Þormóðsholti. Teikningu gerði Gunnar Jónasson. Umsókn dagsett 30.06.1977.
Teikningar fylgja ekki.

Ýmislegt

Tryggingaskírteini 1903, niðurjöfnun Seyluhrepps 1904 og uppskrift úr Landamerkjaskrá fyrir Sauðá frá 1885.

Minnisblöð

Ýmis minnisblöð, vegna sýslufundar 1935.
Alls níu blöð, tillögur, drög og fleira.
Ástand skjalanna er gott.

Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu (1874-1988)

Sendandi: Sigurður Kortsson

Bréf til Jóns Jónssonar "óðalsbónda" á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði frá Sigurði Kortssyni. Ritað á Bakkakoti 1. mars 1872. Eini maðurinn sem kemur til greina út frá Íslendingabók er Sigurður Kortsson fæddur 10.12.1825 - deyr 14.12.1902. Af bréfinu að dæma þá er hann vinnumaður eða húsmaður á Bakkakoti. Efni bréfsins fjallar um skuld sem Sigurður telur sig eiga inni hjá Jóni.

Sigurður Kortsson (1825-1902)

Sendandi: Metúsalem Magnússon

Metúsalem er að segja mági sínum, Jóni Jónssyni frá Hóli, frá því sem á daga hans drífur. Meðal þess er núningur við tengdafjölskyldu á Bakka, skipsstrand við Finnafjörð, rán á góssi og búskapurinn á Bakka.

Metúsalem Magnússon (1832-1905)

Erindi frá Árna Gíslasyni

Bréfið er ritað í Eyhildarholti 9. janúar 1863 og er stílað á hreppstjóra. Undir bréfið ritar A. Gíslason sem er að öllum líkendum Árni Gísli Gíslason frá Ketu í Hegranesi en hann fluttist til Suðurnesja upp úr 1860. Árni er að biðja Jón um að innheimta eða taka við fjármunum sem Jón á Kimbastöðum skuldaði honum því hann verði fyrir sunnan um veturinn.

Um arf eftir Árna Helgason á Fjalli

Innihald skjalsins fjallar um það að Árni Helgason á Fjalli í Sæmundarhlíð viðurkenni að eiga "launsoninn" Jón og verið er að tryggja honum arf eftir daga Árna. Undir skjalið rita Árni og Margrét Björnsdóttir kona hans, vitnin eða vottar Jón Sturluson og Bjarni Jónsson. Einnig ritar undir skjalið Ólafur Björnsson og síðan eru nöfn barna Árna tilgreind.

Vinnubækur Bjarna

Vinnubækur frá grunnskólagöngu Bjarna Jónassonar. Bækurnar gefa góða innsýn í nám barna á þessum tíma en um er að ræða vinnubækur í ýmsum fögum. Bækurnar innihalda teikningar, stíla, skriftaræfingar og fleira.
Bækurnar eru ekki merktar með ártali né námsgrein en líklega inniheldur hver bók/mappa öll námsgögn það skólaárið.
Bjarni myndskreytti mörg blöð með fallegum og vel gerðum myndum.
Gögnin eru líklega mynduð einhvertíman á árabilinu 1937-1943.

Uppkast að bréfum og fleira

Eitt tölublað af Barnablaðinu ( 8 árg. 8 tbl.), uppkast að bréfi til Sogurðar Helgasonar, og uppkast að bréfi varðandi áskrift að Barnablaðinu, einnig nokkur tóm umslög merkt Bjarna.

Námsgögn frá Laugarvatni

Námsgögn Gunnlaugs frá þeirri tíð er hann dvaldi í Laugarvatnsskóla. Um er að ræða stílabækur og reikningsbækur ásamt lausum blöðum af ýmsu tagi. Skjölin gefa ágætis innsýn í þau fræði sem lögð var áhersla á í skólanum á þeim tíma.

Niðurstöður 7396 to 7480 of 7828