Gögnin í safninu segja langa sögu félagsins en þau eru í misgóðu lagi svo gott væri að mynda elsta hluta safnsins til að halda heimildum félagsins. Hreinsun var úr safni af heftum, bréfaklemmum og umslögum. Fundagerða- reikninga og skýrslubækur innihalda skrár yfir keyptar bækur, félagaskrá, bókhald og fundagerðir. Samkvæmt bókskrárbókum eru bókum skipt í deildir eftir því um hvað þær fjalla. Samanber deild E eru leikrit. Útektar bækur eru skráðar á bæjarheiti, ártal og bókaheiti. Gjafabækur frá Friðbirni Traustasyni og er það heillöng bókaskrá. Lítil ljóðabók Milli vita er skrifuð með mjög fallegri rithönd og gaman væri að koma ljóðunum út í veröldina. Bók er eftir Sigríði K Traustadóttur 24.04. 1886 - 02.07.1951.
"Til Kristjáns tíunda". Kvæði eftir Ásmund Jónsson frá Skúfsstöðum í tilefni af afmæli Kristjáns konungs. Úrklippa úr Morgunblaðinu frá 27. apríl 1947.
Skýrslur um heyskap á Skúfsstöðum frá 1899-1963. Þar kemur fram hversu margir unnu við sláttinn, hvaða dagar var unnið við heyskap og hvernig heyaðist.