Showing 2 results

Archival descriptions
Only top-level descriptions Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)** Skagafjörður Sendibréf
Print preview Hierarchy View:

Stefana Guðbjörg Björnsdóttir: skjala- og ljósmyndasafn

  • IS HSk N00497
  • 1930-1970

Safn sem byggist á bréfaskrifum milli Stefönu við frænda hennar óperusöngvarann Stefán Íslandi, þau áttu í bréfaskrifum um 35 ára skeið eða frá því að hann fór utan til söngnáms í Genova á Ítalíu 1930 og allt til ársins 1965 er hann bjó og starfaði í Kaupmannahöfn. Á þeim tíma nam Stefán og starfaði lengi á Ítalíu og svo síðar er hann hóf störf hjá Konunglegu óperunni í Kaupmannahöfn. Í safninu, auk sendibréfanna eru handskrifaðar jólakveðjur, nafnspjöld og skeyti. Einnig efnisskrá tónleika sem Stefán og Else Brehms héldu í Reykjavík ásamt undirleikaranum Fritz Weisshappel og skáldsaga sem er merkt Stefáni. Í safninu voru tveir myndarammar, í þeim voru tvær myndir - önnur þeirra pappírskópía var sett í viðeigandi plastvasa ásamt öðrum litmyndum sem voru í safninu. Hin myndin var úrklippa úr tímariti eða blaði með mynd af Stefáni, sú mynd var grisjuð úr safninu. Ákveðið var að halda myndarammana í safninu.
Allt safnið er ágætlega varðveitt.

Stefana Guðbjörg Björnsdóttir

Árni G. Eylands: Skjalasafn

  • IS HSk N00141
  • Fonds
  • 1916-1926

Gögn varðandi komu skurðgröfunnar til Skagafjarðar árið 1926.

Árni G. Eylands (1895-1980)