Showing 8 results

Archival descriptions
Fellshreppur File
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

Fjárbók Fjárræktarfélags Fellshrepps

Þykk innbundin bók sem er merkt á kili; Fjárbók. Bókin er með forprentuðum blaðsíðum og handskrifuðum upplýsingum um ær og hrúta í Fellshreppi frá 1950-1964. Bókin hefur varðveist vel og er ekki handskrifað í hana nema að hluta til, eða um helming blaða.

Fjárræktarfélag Fellshrepps

Formleg bréf frá Búnaðarfélagi Íslands

Vélrituð formleg erindi frá Búnaðarfélagi Íslands til Fjárræktarfélags Fellshrepps. Bréfin voru í tveimur umslögum sem voru inni í fundagerðabók. Um er að ræða staðfestingu á styrkgreiðslum til fjárræktafélagsins. Einnig voru handskrifað á línustrikuð blöð nöfn á verðlaunahrútum í Fellshreppi árið 1962 og skrá yfir endurgreiðslu á sæðingatollum árið 1963. Öll gögnin eru vel læsileg og vel varðveitt.

Fjárræktarfélag Fellshrepps

Hrútadómar og -skrá

Forprentuð skýrsluform með handskrifuðum upplýsingum um hrútadóma á tímabilinu 1958-1966. Í safninu er einnig úprentuð tafla yfir kjötprósentu með tölulegum upplýsingum. Gögin eru í góðu ástandi og vel læsileg, þau voru inni í Fjárskýrslubókinni. Á bláu afriti er nafnalisti á kúm frá Skálá, í eigu Konráðs Ásgrimssonar, dags. 13/6.1964.

Fjárræktarfélag Fellshrepps

Gjörða- og reikningabók Fjárræktarfélags Fellshrepps

Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum blaðsíðum. Bókin hefur varðveist mjög vel og er í góðu ásigkomulagi. Bókin er með límborða á killi og í henni eru fundagerðir og reikningar félagsins frá 195, síðasta fundagerðin er síðan 1967.

Fjárræktarfélag Fellshrepps

Yfirlitsskýrslur Fjárræktarfélags Fellshrepps

Forprentaðar yfirlitsskýrslur, með handskrifuðum og tölvuprentuðum upplýsingum um hrútadóma, fallþunga kjöts og skrá yfir veturgamlar ær. Skýrslurnar eru flestar skráðar á Jóhönnu Kristjánsdóttur frá Róðhóli og Jón Björn Sigurðsson Bræðraá.
Sumar skýrslur voru í tví- og þríriti, afritin hreinsuð úr safninu. Skýrslurnar eru með tölvuprentuðum og handskrifuðum upplýsingum. Öll gögnin eru í góðu ásigkomulagi og vel læsileg.

Fjárræktarfélag Fellshrepps