Harðspjalda handskrifaðar bækur í góðu ástandi um starfsemi félagsins og ein handskrifuð fundagerð 1977. Í örk Item 3, er líka settur handskrifður miði er fylgdi safni og segir að Sigmundur Jónssson Vestara Hóli afhenti 4. 10. 1998.
Gögn Ungmennafélags Holtshrepps, Fljótum í Skagafirði, frá 1919 til 1971. Í safninu eru alls sex bækur, fjórar fundagerðabækur, frá 1919 - 1964, ein bók með efnahagsreikningum félagsins, fyrir tímabilið 1935-1948 og bók með félagatali og lögum félagsins, dags.1919 - 1949.
Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum síðum. Bókin hefur varðveist ágætlega og mikið af blaðsíðum bókarinnar eru óskrifaðar. Í bókinni eru laus blöð, línustrikuð með handskrifuðum fundagerðum, dags, 4.1.1962 og 1.1.1971.
Vélritað bréf, undirritað af starfsmanni tímaritsins Freys. Framan á bréfið og á bakhlið þess er búið að handskrifa svör við ýmsum spurningum sem í bréfinu eru.
Vélritað bréf, undirritað af starfsmanni Búnaðarfélags Íslands. Bréfinu fylgja listar yfir greiðslur jarðræktarframlaga, kvittun fyrir móttöku og reikningur vegna kostnaðar.
Vélritað bréf, undirritað af starfsmanni Búnaðarfélags Íslands, ásamt vélrituðum lista yfir ríkisframlög til jarðræktar og húsabóta 1957, þar sem bændur hafa kvittað eigin hendi fyrir sitt framlag.
Innbundin og handskrifuð bók með línustrikuðum síðum. Bókin vel læsileg og inniheldur lög og nafnaskrá yfir félagsmenn og konur. Bókin hefur varðveist sæmilega.
Innbundin og handskrifðuð bók með línustrikuðum síðum, í bókinni eru bókhaldsfærslur frá 1935-1948, ekki nema hluti af bókinni er nýttur fyrir reikningshalds, mikið er af auðum blaðsíðum. Bókin er með límborða á kjölnum og er ágætlega varðveitt.
Innbundin og handskrifuð bók í A3 stærð með línustrikuðum síðum. Bókin er ágætlega varðveitt, kápan er orðin frekar snjáð. Inni í bókinni eru forprentuð skrá frá Í.S.Í. með lista yfir sambandsfélög ÍSÍ, dags. 1. júlí 1944. Aftast í bókinni eru tvö blöð á þeim eru handskrifað erindi til íþróttafulltrúa, engin undirskrift er en bréfið er á tveimur línustrikuðum blöðum og er dags. 9.1.1950.
Þunn stílabók, pappinn er með límdum kjöl þar sem hann var farinn að mestu í sundur í miðjunni. Bókin er handskrifuð og vel læsileg, blaðsíðurnar eru orðnar snjáðar, þó sérstaklega í miðjunni þar sem hefti sem héldu þeim saman voru fjarlægð því þau voru orðin ryðguð og molnuð í sundur og farin að skemma blaðsíðurnar.
Bréfið er handskrifað á 2 pappírsarkir í folio stærð. Það varðar fjárskoðanir í 11 hreppum í Skagafirði. Með liggur skýrsla um fjárskoðunina, 1 pappírsörk í folio stærð.
Bréfið er ritað á pappírsörk í folio broti, alls þrjár skrifaðar síður. Bréfritari mótmælir því að "sveitalimur" sá er málið varðar eigi sveitafesti í Holtshreppi.
Uppskrift og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi á dánarbúi Engilráðar Jónsdóttur (tilg. Melbreið út frá texta - samkv. íslendingabók er hún vinnukona á Fyrir-Barði)
Uppskriftir og virðingar hreppstjórans í Holtshreppi á eignum Guðmundar Jónssonar á Melbreið og seinni virðingin á eignum Sólveigar Sveinsdóttur á Móskógum.
Uppskrift og virðing hreppstjórans í Holtshreppi þann 11.04.1854 á eignum Guðmundar Tómassonar og Þorbjargar Jónsdóttur (tilg. á Laugalandi í Fljótum).
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 1 pappírsörk í 2xfoliostærð. Á henni stendur efst: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1852 til Fardag 1853."
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 3 pappírsarkir. Á einni stendur efst: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1851 til Fardag 1852." Á hinar tvær eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 2 pappírsarkir. Á annarri stendur efst: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1850 til Fardag 1851." Á hina eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 2 pappírsarkir. Á annarri stendur efst: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1849 til Fardag 1850." Á hina eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 3 pappírsarkir. Á tveimur þeirra stendur efst: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1848 til Fardag 1849." Á þá þriðju eru færðar athugasemdir um yfirlitið.
Skjöl með yfirliti um skiptingu fátækraframfærslu milli hreppa í sýslunni ásamt meðfylgjandi skjali með athugasemdum. Um er að ræða 4 pappírsarkir. Efst á fyrstu örkinni stendur: "Fattigræferets Tilfrand í Skagefjords Syjsel for Aaret fra Fardag 1847 til Fardag 1848." Á hinar arkirnar eru færðar athugasemdir um yfirlitið.