Í safninu eru skjöl er tengjast undirbúningi Kvenfélags Seyluhrepps vegna 70 ára afmælis félagsins, þar á meðal eru 2 ágrip af sögu kvenfélagsins, handskrifaðir minnispunktar frá aðalfundi, félagskrá Kvenfélags Seyluhrepps frá 1932-2002. Einnig er útprentað skjal með ræðu formanns sem flutt var á afmælishátíðinni 2.6.2002 í Miðgarði ásamt minnispunktum, símskeyti, afmæliskortum, sendibréfum og kveðskap í tilefni afmælisins. Afrit af boðskortum sem sent var fyrrverandi félögum kvenfélagsins og Seylhreppingum. Innbundin græn og gul blöð (með slaufu) með dagskrá afmælissfagnaðarins og lagatextum sem dreift var til samkomugesta. Útprentuð mynd af Sigurlaugu fyrsta formanni kvenfélagsins og manni hennar.
Sendibréfin eru frá (Sólveigu) Öldu Pétursdóttur frá Fjalli og Steinunni Jóhannsdóttur frá Lauftúni. Steinunn orti og sendi félaginu kveðju í bundnu máli sem flutt var á afmælisfagnaðinum; "Með huga klökkum ég heimboðið þakka, á mína hugljúfu bernskunnar slóð.."
Í safninu er einnig 2 aðrar vísur, önnur eftir Kristján Runólfsson sem hann samdi af sama tilefni "Kvenfélag Seyluhrepps 70 ára", " Með samtaka krafti í sjötíu ár, sinnt hafið menningarþörfum",... einnig er í safninu ljósrit af kveðskap Emmu Hansen og sem hún orti í tilefni af afmæli Sambands Skagfirskra Kvenna; Þú frjálsa víða fagra sveit, með fjöll á báðar hendur"...