Skáldsaga eftir Herbert Jenkins sem er þýdd á dönsku og kallast "Betjent bindle - Humorist". Á forsíðu er handskrifað; "Stefán Guðmundsson Genova Ítalía". Neðan bókarheitisins er handskrifað "Þítt (þýtt) á vængjum söngsins svífur sálin glöð í friðar heim". Á næstu tveimur blaðsíðum er handritað nafn Stefáns, líkt og er á forsíðunni.
Forprentaður einblöðungur með efnisskrá tónleika sem Stefán Íslandi og Else Brems sungu á í Reykjavík, Fritz Weisshappel spilaði undir. Ekki kemur fram á blaðinu hvaða ár þessi söngskemmtun var haldin.
Hvatningakort frá aðilum eða aðdáendum innan Tindastóls - ekki kemur fram hverjir senda eða hverjum kortið er ætlað. Inni í kortinu stendur; STRÁKAR! nú er að duga eða drepast - upp með baráttuna og beint í 2. deild. Með "SÚSÍ" hefst þetta allt. Tindastóll "Fan Club". Einnig er útklippt jólakveðja frá formönnum Ungmennafélagi Íslands.
Í safninu er skjalaskrá Jóns Þorlákssonar og Ingibjargar Claessen Þorláksson sem afhent voru Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Göngukort í nágrenni við Hraunsvatn í Öxnadal límt við þakkarbréf frá Hrauni í Öxnadal ehf.
Kaupsamingur og afsal vegna Víðilæks sem var sumarbústaður í eigu Árna og Maríu, einnig lítil skrifblokk með lista yfir innkaup vegna framkvæmda við bústaðinn. Eitt skjal með lista og útskýringum er varða val á skífu - ekki liggur fyrir hverju það tengist en skjalið var sett með kaupsamningsskjölunum.
Vísur úr safni Árna og nokkrar sem hann samdi sjálfur, einnig er handskrifuð frásögn og á blaðinu er límdur miði - líklega athugasemd frá Árna sjálfum. Skjölin eru án dagsetningar og ártals nema tölvupóstsamskipti Árna við aðra hagyrðinga.
Skjöl er varða tillögu að stofnun brugghúss á Sauðárkróki - kynning á verkefninu, fundarboð, stofnskrá og frumvarp til laga fyrir félagið, tilaga frá erlendum aðila með framleiðslutæki.
Formleg erindi - Viðhorfskönnun frá Félagsráði Skagafjarðar - Bréf til búseturétthafa og íbúa að Sauðármýri 3 - Tillaga að byggingu, lýsing og tillöguteiknigar - Félagatal.
Samþykktir Húsnæðisamvinnufélags Skagafjarðar (lög) og tillögur um lagabreytingar - Útreikningar - Skjöl, teikningar og samþykktir fyrir svalaskjól að Sauðármýri 3.
Innbundin og handskrifuð bók með fundargerðum stjórnar byggingarnefndar félags eldri borgara í Skagafirði tímabilið 1992-2002. Í bókinni eru einnig rúðstrikuð blöð með samantekt frá því að ákvörðunartaka fyrir byggingunni er gerð og þar til byrjað er á framkvæmdum.
Innbundin skýrsla um ástand skólabyggingarinnar á Hólum, myndir og teikningar með hugmyndium af breyttri starfsemi fyrir bygginguna eru í skýrslunni. Aftast í skýrslunni eru breytingatillaga til frumvarps til fjárlaga frá Alþingi fyrir árið 1983 og Reglugerð um hrossaræktarbú að Hólum í Hjaltadal frá 1971.
Í bókina eru færðar fjöldi vinnustunda og verkefni starfsmanna skógræktarfélagsins. Í bókinni er einnig lausar blaðsíður með upptalningu á plöntuðum trjáplöntum á tímabilinu 1990-1993 - auk annara slíkra upplýsinga. Ljósrit og fax með launataxta fyrir unglinga frá fjármálaráðuneytinu. Mikið af lausum blaðsíðum er í bókinni - ekki er vitað með vissu hvort blöðin eru úr þessari bók.
Í bókinni eru dagbókarfærslur um verkefni sem unnin voru unnin í skógræktinni á Hólum sumarið 1992. Einnig yfirlit yfir launaútreikning og sundurliðun á staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna. Ýmsar athugasemdir eru færðar í bókina.
Innbundin og handskrifuð bók. Í bókina eru skráðar fundagerðir, félagaskrá, reikningar og lög Hestamannafélagsins Hreins. Inni í bókinni voru tvö umslög með lógó Landsambandi Hestamannafélaga - bæði umslögin voru rifin, auk þess sem búið var að rífa og klippa úr frímerkin.Í öðru umslaginu var óútfyllt ársskýrsla frá Landsambandi hestamannafélaga frá árinu 1975 í tveimur eintökum og fundarboð á 27. ársþing LH 1976. Í hinu umslaginu voru tvö blöð; fundarboð á 26. ársþings LH árið 1975 og dagskrá fundarins. Einnig var bréf og listi með nöfnum námsmeyja í húsmæðraskólanum að Varmalandi og blöð með lista yfir sérhljóðana i og y.
Handskrifuð, vélrituð tölvuprentuð og ljósrituð skjöl. Í safninu eru sönglagatextar, skýrslur, erindi frá Skógræktarfélagi Íslands, drög að samningi við skógræktarfélagið, fræðsluerindi, ferðaskipulag.
Handskrifuð, vélrituð tölvuprentuð og ljósrituð skjöl. Í safninu eru fræðsluerindi, skýrslur, teikningar, námskeiðs auglýsing, uppdrættir og reglur um umgengi í Hólaskóg. Í þessu safni voru nokkrar ljósmyndir, þær eru skráðar sem A-3-1.
í safnu eru handskrifuð, forprentuð og tölvuprentuð gögn. Reiknings- og viðskiptayfirlit, greiðsluseðlar og -kvittanir, skilagreinar og skýrslur fyrir skattinn, 2 frumbækur og 1 tékkhefti. Bæði er um að ræða frumrit og afrit gagna.
Handskrifuð, tölvuunnin og ljósrituð skjöl. Safnið inniheldur verkáætlun, skipulag trjágróðurs og teikningu landslagsarkitekts fyrir tjaldsvæðið á Hólum og líklega hluta af íbúðasvæðinu þar.
Ljósrit og tölvuútprentanir. Í safninu er fylgigögn bókhalds, sundurliðun á opinberum gjöldum, skilagreinar fyrir skattinn, reiknings- og viðskiptayfirlit, erindi frá skattsjóra, útfyllt tékkhefti og greiðslukvittanir og árs-, aðalreiknngar skógræktarfélagsins 1990-1992. Úr safninu var grisjað úr félagaskra (önnur félagskrá frá sama tímabili var líka í safni A), leiðbeiningar frá skattinum, óútfylltir launamiðar og eintök af aðalreikningum 1990 og 1992- eitt eintak af hvoru var fjarlægt úr safni.
Handskrifuð, vélrituð tölvuprentuð og ljósrituð skjöl. Í safninu eru félagaskrá, erindi frá Skógræktarfélagi Íslands, endurrit úr fundargerðum skógræktarfélagsins, teikningar og áætlanir fyrir gróðursetningu á Hólum og minnisblöð.
Veðurfarsbækur Pálma kaupmanns Péturssonar á Sauðárkróki, skrifað af honum í prentuð almanök (frá HF. Hreinn, Rvk.) Bækurnar eru fyrir árin 1925 til 1927.
Innbundin bók með ársreikningum Vkf Öldunnar tímabilið 1962-1979. Vel læsileg bók og ágætlega varðveitt. Í bókinni eru vélrituð pappírsgögn með ársreikningum orlofs- og sjúkrasjóðs - tölvuútprentun úr banka vegna bankainnistæðu sjúkrasjóðs Vkf Öldunnar. persónugreinanleg gögn.
Handskrifuð og vélrituð pappírsgögn. Í safninu er frumbók vegna greiðslna - Ógreidd laun hjá Fataverksmiðjunni Yl - greiðslur frá A.S.Í. til félagskvenna - Styrkir til Tindastóls - Bréf til Björns Daníelssonar ritstjóra blaðsins Tindastóls (1964) - kvittanir fyrir greiðslum frá Bæjarsjóði Sauðárkróks (1963) - Efnahagsreikningur Félagsheimilisins Bifrastar (1962) - Ársreikningar fyrir sjúkrasjóð (1964-65 og 1967) - Rekstrarreikningar Vkf Öldunnar (1966) - Ársreikningur Félagsheimilisins Bifrastar (1964).
Bréf: v/ námskeið hjá atvinnulausum - v/ sameining verkalýðsfélaga og lífeyrissjóða - kauptaxtar - samningur Alþýðusamband Norðurlands og sjúkrahúsin á Norðvesturlandi - kvittun Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir móttöku gagna frá Öldunni.
Bréf: v/ rekstrarstöðvun og -erfiðleikar hjá Dögun - uppsögn á bónussamningi starfsfólk hjá Dögun - kauptaxtar - v/ vaktavinna í Fiskiðjunni - samkomulag Aldan - Fram og Dögun - v/ hóppremía - samningur v/ lífeyrissjóð.
Bréf: Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytið v/starfsfólk sjúkrahúsa - könnun v/ sláturtíð og sviðahausa- KS og slátursamlag Skagfirðinga - Alþýðusamband Norðurlands - Samband samvinnufélaga - útnefning í úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta á Sauðárkróki - Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki v/ kjör í mötuneyti og ræstingu (launamiðar) - VMSÍ m.a. uppsagnir starfsfólks á sjúkrahúsum.
Bréf: VMSÍ v/kjaramál og félagslegt húsnæði - Fram v/ verðlagsmál - úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta- verkalýðsfélögin á Sauðárkróki - nauðungaruppboð á íbúðum - beiðnir um leigu á verkamannabústöðum frá eigendum og sölulisti- sótt um stærri íbúðir.
Bréf: samkomulag um kaup og kjör í skólamötuneytum við Alþýðusamband Íslands - yfirlýsing frá fjármálaeftirlitinu um kaup og kjör þrifafólks í skóla - KS vegna uppsagnar - atvinnuleysisskrá - inntaka og úrsögn úr Öldunni.
Innbundin bók sem inniheldur félagaskrá og lög Vkf Öldunnar frá 1938-1955. Bókin var í safni B1, hún er vel læsileg og sæmilega varðveitt en búið er að rífa nokkar blaðsíður úr bókinni og hluta af félagatali ársins 1939. Í bókinni eru persónugreinanlegar upplýsingar.
Pappírsgögn sem innihalda umsóknir um dagpeninga úr sjúkasjóði, einnig eru veikindavottorð frá læknum í safninu. Um persónugreinanlegar trúnaðarupplýsingar er að ræða.