Vísur eftir Dr. Jón Helgason. Virðist vera teknar saman af "K.S.B.". Á heftið er skrifað: "Þessi kvæði Dr. J. H. hafa ekki komið mikið fyrir augu almennings."
Minningarbók Steinunnar Trine Hansen Kristjáns en hún var föðursystir Erlendar Hansen. Ljósritið virðist koma frá Björgvini Brynleifssyni, Skagaströnd, syni Steinunnar.
Baldur Pálmason (1919-2010), skrifar Magnúsi. Baldur var útvarpsmaður, ljóðskáld og þýðandi í Reykjavík. Á haus bréfsins stendur: Skrifstofa útvarpsráðs.
Samkomulag milli Framsóknarflokks og Samfylkingar í Sveitarstjórn Skagafjarðar 2006-2010. Einnig reglur varðandi starf Samfylkingarinnar í sveitarstjórninni og skipan sveitarstjórnarráðs.
Drög að samningi um sameiningu útgerðarfélaganna Nöf h.f. og Útgerðarfélags Skagfirðinga, Sauðárkróki. Undirritað 11.12.1973 af stjórn Nafar h.f. en vantar undirritun ÚSS. Saman við þetta er heftað "Samningur stjórnar" undirritað 11.12.1973 af stjórn Nafar h.f.
Fjölfaldað bréf til hluthafa Hraðfrystihússins h.f. varðandi aukið hlutafjárframlag vegna mikilla framkvæmda í sambandi við uppbyggingu Hraðfrystihússins h.f.
Útvarpsþáttur Út um hvippinn og hvappinn í umsjón Agnars GUðnasonar, viðtöl við Guðjón Hallgrímsson b. Norðurmýri og Magnús Guðmundsson Dalbæ í Hrunamannahreppi