Í gömlu heyhlöðunni í Múlakoti - Rangárvallasýslu. Frá vinstri: Fjóla - Guðbjörg og Reynir í rólunni. Ólafsbörn Túbals. Síðan Soffía Gísladóttir (fædd 1915) - yst til hægri er Ásta Maríudóttir. Móðir hennar var Vigdís Eyjólfsdóttir - bróðurdóttir Guðbjargar í Múlakoti.
Í Múlakoti 1935. Reynir Túbals - Þorbjörg Jónsdóttir og Jón Ingi Jónsson (1911-1996 eða 1997) - síðar bóndi í Deild í Fljótshlíð og Dufþaksholti í Hvolhreppi.
Um borð í Gullfossi. Til vinstri með einkennishúfu er Ragnar Guðlaugsson (1897-1978) bryti á Gullfossi. Sá sem mundar sleggjunna er Samúel Torfason (1902-1987) járnsmiður. Aðrir eru óþekktir.
Danska konungsskipið við Sprengisand í Reykjavíkurhöfn. Konungur á leið um borð í snekkju sína eftir veislu á Hótel borg. Bryggjan er skreytt í tilefni konungskomunar.
Fjórar prúðbúnar konur virða fyrir sér danskt herskip - sem kom í fylgd konungsskipsins Dannebrog við opinbera heimssókn til Íslands 1936. Konurnar eru f.v. Lára Guðmundsdóttir (1891-1967) - Ragnheiður Björg Guðmundsdóttir (1875-1952) - Elín Guðmundsdóttir (1887-1962) og Þórunn Guðbrandsdóttir (1885-1974).
Borgin að vakna. Blaðsöludrengur á horni Lækjargötu og Bankastrætis og peysufatakonur komnar á stjá. Ríkisfáninn blaktir við hún á stjórnarráðinu en í fjaska sést í söluturninn á Arnarhóli og Sænska frystihúsið.
Saltfiskþurrkun á vírnetum á þurrkreitum á gömlu Akureyrinni. Hér stóðu húsin sem brunnu 1912. Til vinstri er Tuliniusarhúsið nær og bryggjuhúsið fjær - nú Hafnarstræti 18 og 18b. Local Caption Svipuð BS 244
Hlíðarshús - Lækjargata 3 - Akureyri. Þar bjó Sigurður Hlíðar (1885-1962) dýralæknir í Norðlendingafjórðungi með búsetu á Akureyri þangað til hann var skipaður yfirdýralæknir með búsetu í Reykjavík árið 1943. Sigurður var þýskur vararæðismaður á Akureyri frá 1927 til 1940. Kona hans var Guðrún Louisa Guðrbrandsdóttir frá Reykjavík (1887-1963). Tréin til vinstri eru í garði sr. Geirs Sæmundssonar vígslubiskups. Telpurnar á myndinni eru systurnar Jóna Alfreðsdóttir (f.1929) og Helga Alfreðsdóttir (f. 1927) sem ólust upp á Lækjargötu 6 - - dætur Alfreðs Steinþórssonar frá Hömrum (f.1903). Gamla konan er líklega María Friðfinnsdóttir í Ráðhússtíg 2 - kölluð María í Smiðjunni.
Spónsgerði í Hörgárdal í Eyjafirði - en þangað fór Bruno með meðmælabréf prestsins á meðan Matthías skoðaði leiði Bjarna Thorarensen. Myndin er tekin á bæjarhúsunum til suðvesturs í átt að fjárhúsunum - en þar er húsmóðirin - Jenný Ásgeirsdóttir - ásamt heimalingnum. Í fjarlægð sjást fjárhúsin á Möðruvöllum (frá vinstri: Fjárhús - miðhús og Lækjarbakkahús). Ábúendur 1935 voru Ferdinand Kristjánsson frá Meyjarhóli á Svalbarðsströnd (1892-1971) og Jenný Ásgeirsdóttir frá Gautsstöðum (1898-1995). Dóttir þeirra er Ásta Ferdinandsdóttir (f. 1928) Spónsgerði.