Showing 60049 results

Archival descriptions
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

35409 results with digital objects Show results with digital objects

Bréf

Bréfið er skrifað eftir orðum Margrétar (Grétu) af fullorðnum einstaklingi vegna ungs aldurs Margrétar. Sigurður var afi hennar.

Hjaltastaðir

Eftirskrift bréfsins er líklega skrifuð af móður Bryndísar, Ragnheiði Mörtu Þórarinsdóttur (1919-2013), en hún var kona Péturs Sigurðssonar (1919-2012).

Jólakort

Jólakortið er stílað á Sigurð, Laugavegi 171, Reykjavík og er það skrifað af Þórólfi og Bryndísi Pétursdóttur systur hans.

Bréfritari: Páll Zóphóníasson

Páll Zóphóníasson (1886-1964) skrifar Sigurði. Páll var kennari á Hvanneyri. Skólastjóri, búnaðarmálastjóri í Reykjavík og alþingismaður. Bjó m.a. á Ránargötu 6 a í Reykjavík. Kona: Guðrún Þuríður Hannesdóttir (1881-1963).

Sigurður Einarsson (1890-1963)

Bréfritari: Finnbogi Bjarnason

Finnbogi Bjarnason, Brekkugötu 29, Akureyri skrifar Sigurði. Mjög líklega er um að ræða Skúla Finnboga Bjarnason (1895-1986), verslunarstjóra á Akureyri (áður bóndi í Skagafirðinum). Kona hans var Sigrún Eiríksdóttir (1897-1991).

Sigurður Einarsson (1890-1963)

Bréfritari: Magnús H. Gíslason

Magnús H. Gíslason (1918-2013) skrifar Sigurði. Magnús var bóndi á Frostastöðum í Akrahreppi og síðar blaðamaður í Reykjavík, síðast búsettur á Frostastöðum. Var varaþingmaður og sat um tíma á þingi. Kona: Jóhanna Guðný Þórarinsdóttir (f. 1921).

Sigurður Einarsson (1890-1963)

Bréfritari: Egill Bjarnason

Egill Bjarnason (1927-2015) skrifar Sigurði. Egill var héraðsráðunautur í Skagafirði, búsettur á Sauðárkróki. Kona: Alda Vilhjálmsdóttir (f. 1928).

Sigurður Einarsson (1890-1963)

Bréfritari: Magnús Helgi Helgason

Magnús Helgi Helgason (1896-1979) (skrifar undir Magnús Helgason) skrifar Sigurði. Magnús var bóndi í Kolgröf á Efribyggð og í Héraðsdal í Tungusveit, síðast búsettur á Sauðárkróki. Kona: Jónína María Ingibjörg Guðmundsdóttir (1893-1988).

Sigurður Einarsson (1890-1963)

Bréfritari: Sveinn Guðmundsson

Sveinn Guðmundsson (1912-1998) skrifar Sigurði. Sveinn var kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga. Bréfið er merkt kaupfélaginu. Kona: Valgerður Elín Hallgrímsdóttir (1920-1996).

Sigurður Einarsson (1890-1963)

Bréfritari: Stefán Vagnsson

Stefán Vagnsson (1889-1963) skrifar Sigurði. Stefán var kennari og bóndi á Hjaltastöðum, Flugumýri og Sólheimum í Akrahreppi. Hann var síðast búsettur á Sauðárkróki og starfaði þar sem skrifstofumaður. Kona: Helga Jónsdóttir (1895-1988).

Sigurður Einarsson (1890-1963)

Results 1 to 85 of 60049