Showing 4 results

Archival descriptions
Alþingiskosningar
Print preview Hierarchy View:

Jóhanna Lárentsínusdóttir: skjala- og myndbandasafn

  • IS HSk N00501
  • Fonds
  • 1960-2011

Safn sem Jóhanna Lárentsínusdóttir afhenti safninu og voru í eigu Erlendar Hansen, í safninu voru pappírsgögn og 19 videóspólur. Á videospólunum er efni sem Erlendur tók upp á hinum ýmsu ferðalögum, viðburðum og hátíðum tengdum Skagafirði skagfirðingum á tímabilinu 1997-1999. Eitthvað er um að Erlendur hafi tekið afrit af eldra efni á spólurnar, eins og kemur fram á nokkrum spólum.
Í safninu eru líka málgögn stjórnmálaflokkanna á Sauðárkróki vegna sveitastjórnarkosninga sem voru 1994. Auk þeirra eru kynningarbæklingar frá Alþýðuflokknum vegna alþingiskosninga og eru þau gögn mun eldri og án ártals. Í safninu er einnig sérrit um aðalskipulag Sauðárkróks - sérprentun úr sveitarstjórnarmálum 4. tbl. 1970.
Ákveðið að grisja úr safninu 3 VHS spólur sem innihalda upptökur úr sjónvarpsþáttum á RÚV og kosningasjónvarp Stöðvar 2 þegar alþingiskosningarnar voru 02.05.1999. Erlendur hefur haldið vel utan um hvað er á spólunum, þar sem þær eru merktar bæði með númeri og innihaldi.

Jóhanna Lárentsínusdóttir (1926-)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20,8 x 15,8 cm.
Bókin inniheldur m.a. heiti á greinum eftir Hannes Hannesson sem Pétur hefur ritað hjá sér sem og uppskrift nokkurra greina.
Einnig kjörskrá Holtshrepps 1966 og úrslit kosninga í hreppnum sama ár. Jafnframt úrslit Alþingiskosninga 1970.
Þá er í bókinni skrá yfir sögur lesnar í útvarpinu 1947-1951. Einnig brot úr fundargerðum ungmennafélagsfunda. Loks sögn frá Hornnesi.
Ástand bókarinnar er gott.
Með liggja fimm minnismiðar, m.a. um ættfræði.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)

Stílabók

Stílabókin er í stærðinni 20,0 x 16,4 cm.
Bókin inniheldur upplýsingar um Alþingiskosningar árið 1971
Ástand bókarinnar er gott.

Pétur Jóhann Jónasson (1883-1972)