Sýnir 160 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Magnús Kr. Gíslason: Skjalasafn
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

Vaglar

Bréf/nóta um það sem Ingvar H. Sigurðsson frá Glaumbæ staðfestir að hafa fengið greitt það vetrarkaup sem hann hafði fengið hjá Magnúsi Kr. Gíslasyni bónda á Vöglum 1958-1959. Ath. sundurliðanir á baksíðu?

Poesiebók

Bók með uppskrifuðum kvæðum eftir ýmsa. Bókin er merkt Ingibjörgu og fremst í bókinni stendur: Til Imbu Stefánsd. frá Imbu Magnúsd.

Cavalier, Norður Dakota

Árni J. Jóhannsson skrifar Magnúsi Kr. Gíslasyni frá Cavalier í Norður Dakota. Í bréfinu minnist Árni á dauða konu sinnar, Önnu og blaðaúrklippu (minningargrein um hana). Greinin er meðfylgjandi í umslagi.

Kópavogur

Helgi Tryggvason skrifar Magnúsi Kr. Gíslasyni. Á haus bréfsins stendur: Kársnesbraut 17, Kópavogi, 1. des. 1972.

Ýmis gögn

119 blöð að mestu í A4 broti. Vélritað og handskrifað. Einnig umslög, stílabók og viðskiptabók við Séreignasjóð Sláturfélags Skagfirðinga. Einnig fleiri gögn, m.a. teikning af húsi. Annars að mestu leyti bókhaldstengt.

Ýmis kveðskapur

Ýmis kveðskapur, að mestu eftir Magnús. Einnig kvæði undirritað af Bjarna Gíslasyni og vísur undirritaðar af St. St, Stefáni Stefánssyni frá Móskógum á Bökkum, Skagafirði.
Með er úrklippa úr blaði, minningagrein eftir Magnús í bundnu máli um Gísla Sigurðsson hreppstjóra á Víðivöllum, 1948.
Sum kvæði Magnúsar birtust seinna í bókinni Ég kem norðan kjöl (1954).

Bréfritari: Ninna J. Stevens

Ninna J. Stevens (f. 1903) skrifar Magnúsi. Hún var búsett í Blaine, Washington, USA. Hún var frænka Magnúsar, eða ritar þannig í sumum bréfanna. Það er þáttur um hana í Vestfirskum æviskrám IV, bls. 285-289. Hún hét Jónína Guðlaug Johnson, var fædd í Hallsonbyggð í North Dakota þann 7. febrúar 1903. Hún var söngkona. Maður hennar var Guðbjartur (Guðbert) Marshall Stevens, fæddur í Winnipeg þann 26. mars 1897.

Niðurstöður 1 to 85 of 160