Hreppsgögn tengd Sauðárhreppi hinum forna og Sauðárkrókshrepp. Líklega eru gögnin komin úr fórum Jóns Þ. Björnssonar þó sum þeirra séu mynduð áður en hann tekur við starfi oddvita hreppsins.
Bréfritari er Guðmundur Erlendsson oddviti Bólstaðarhlíðarhrepps, ritað í Mjóadal 28. ágúst 1910. Bréf til Alberts Kristjánssonar, Páfastöðum, oddvita í Staðarhreppi. Í bréfi kemur meðal annars fram að greiddar séu 32.50 kr til Staðarhrepps vegna barns. Ritað um dilk-byggingarkostnað
Umsókn Kaupfélags Skagfirðinga til Byggingarnefndar Sauðárkrókshrepps um byggingarleyfi fyrir mjólkurvnnslu á lóð félagsins milli Uppsala og Kaupans vestan við aðalgötu bæjarins.
Inniheldur viðskiptamannabókhald úr möppu hreppstjóra (mappan var ónýt þegar gögnin bárust). Um er að ræða handskrifuð blöð sem klippt hafa verið úr innfærslubók, götuð og geymd í möppu. Einnig milliblöð til að aðgreina í stafsrófsröð, og ýmsir reikningar sem varða hreppinn.
Hreppaskilabók fyrir Akrahrepp í Skagafjarðarsýslu 1911-1930. Ýmsar skrár, til að mynda: -Skýrsla um búnaðarástand -Skýrsla um framtal til lausafjártíundar á vor- og hausthreppaskilum -Skrá um skattgilda inntekt -Skrá um utanhreppsmenn er inntekt hafa frá Akrahreppi
Hreppaskilabók fyrir Akrahrepp í Skagafjarðarsýslu 1889-1911. Ýmsar skrár, til að mynda: -Skýrsla um búnaðarástand -Skýrsla um framtal til lausafjártíundar á vor- og hausthreppaskilum -Skrá um skattgilda inntekt -Skrá um utanhreppsmenn er inntekt hafa frá Akrahreppi
Skjöl sem urðu til tíð Jóns Sigurðssonar á Reynistað sem hreppstjóra í Staðarhreppi. Aðallega skjöl sem tengjast fasteignamati og virðingum ásamt nokkrum blöðum um búfénað í hreppnum.