Fjölritaður bæklingur, alls 6 bls. í A5 broti. Á titilsíðu stendur þetta: Lög um félagsheimili og frumdrög að reglum um félagsheimili. Sérprent úr "Félagsheimili."
Skjalasafnið inniheldur bókhaldsgögn, bréf, gögn varðandi félagsheimili, fundagögn, gögn varðandi málaferli v. Eyjafjörð, skólamál skýrslur, útgefin blöð og gögn um sjúkrasamlag, elli- og örorkubætur.
Fundargerðabækurnar eru sex og í misjöfnu ástandi og misstórar. Þær eru frá árunum 1917 - 1984. Blöðin nokkuð trosnuð og rifin eða blöð hafa losnað. Allar handskrifaðar og eru merktar með Gjörðabók Ungmennafélags Höfðstrendinga eða Fundagerðabók U.M.F.H. Í þessum bókum eru fundirnir útlistaði og greinilegt er að miklu er áorkað til samfélagsins og mikið og gott ungmennastarf unnið.
Teikningar af félagsheimili/leikhúsi og hóteli við Faxatorg, teiknað af Jóni Haraldssyni, arkitekt, 1979. Varð aldrei að veruleika. Afstöðumynd sem sýnir einnig hótel sunnan við félagsheimilið. Merkt "Reynir" en erfitt að lesa í restina.
Tvær fjölritaðar pappírsarkir í A4 stærð. Greinargerðin inniheldur ýmsar upplýsingar, sem fram komu á fundi hreppsnefnda Skagafjarðarsýslu 12. júní 1957, varðandi þörf fyrir félagsheimili fyrir íbúa sýslunnar. Á aftara blaði er teikning sem sýnir lögum héraðsins, fjarlægðir og mannfjölda. Aftan á aftara blaðið eru handskrifaðar tölur, einhvers konar útreikningar.
Gögn frá U.M.F.H ( sem inniheldur líka gögn frá Tindastóll sunddeild, Leikfélag Hofsósi, KSÍ ) U.M.S.S, Í.S.Í, U.M.F.Í, Gögni eru í misjöfnu ástandi, blettótt og einhver rifin og nokkuð um viðkvæm eldri blöð, öll þó læsileg. Gögni eru flokkuð eftir ártali, elstu neðst og yngstu efst.