Árni J. Jóhannsson skrifar Magnúsi Kr. Gíslasyni frá Cavalier í Norður Dakota. Í bréfinu minnist Árni á dauða konu sinnar, Önnu og blaðaúrklippu (minningargrein um hana). Greinin er meðfylgjandi í umslagi.
Árni J. Jóhannsson skrifar Magnúsi Kr. Gíslasyni frá Cavalier, Norður Dakota. Hann minnist aftur á dauða konu sinnar og úrklippu úr Heimskringlu (minningargrein). Greinin er meðfylgjandi.
Ásgrímur Hartmannsson skrifar Magnúsi Kr. Gíslasyni. Meðfylgjandi er miði frá Sigurmoni Hartmannssyni sem á stendur: Systurnar á Vöglum. Geymist þar til þær hafa vit á. Sigurmon.
Elsa og Karen "Dúdda" kæla sig í Sauðárgili. Það var vinsælt tómstundargaman að baða sig í Sauðánni enda höfðu Skagfirðingar ekki kynnst hitaveitu og þeim þægindum sem nægt magn af heitu vatni hafa í för með sér.
Aage Micehlsen á tréhesti. Þennan hest fékk Frank Michelsens að gjöf frá Danmörku þegar hann var á fyrsta ári, s.s. 1914 þá var hesturinn klæddur með skinni eða skinnlíki.
Anna Lísa og Frank sonur Páls Michelsens um borð í kassabíl. Aage Michelsen bakvið bílinn. Kassabílar voru uppáhald leikföng margra krakka á Króknum og var þessi kassabíll knúinn með keðjum sem án efa hefur létt á drættinum.
Jörgen Frak Michelsen var sennilega sá fyrsti sem hért svín á Sauðárkrókur. Svínaeignin er nýmæli og af mörgum óhæfilegur matur. Árið 1943 voru 10 svín talin til heimils á Sauðárkróki.
Bréf/nóta um það sem Ingvar H. Sigurðsson frá Glaumbæ staðfestir að hafa fengið greitt það vetrarkaup sem hann hafði fengið hjá Magnúsi Kr. Gíslasyni bónda á Vöglum 1958-1959. Ath. sundurliðanir á baksíðu?
Ásgrímur Hartmannsson (1911-2001) skrifar Magnúsi. Ásgrímur var bæjarstjóri, kaupmaður og framkvæmdastjóri á Ólafsfirði. Meðfylgjandi er miði frá Sigurmoni Hartmannssyni (1905-1991) sem á stendur: Systurnar á Vöglum. Geymist þar til þær hafa vit á. Sigurmon.
Baldur Pálmason (1919-2010), skrifar Magnúsi. Baldur var útvarpsmaður, ljóðskáld og þýðandi í Reykjavík. Á haus bréfsins stendur: Skrifstofa útvarpsráðs.