Showing 51719 results

Archival descriptions
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)**
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

28417 results with digital objects Show results with digital objects

Reykjavík

Bréfin varða friðun rjúpna. Eitt bréf frá Menntamálaráðuneytinu til Magnúsar hreppstjóra, undirrituð af Birgi Thorlacius og Sigurði J. Briem. Svarbréfin eru frá Magnúsi sjálfum og annað með stimpli hreppstjóra Rípurhrepps.

Leeds

Bréfið er skrifað í Rona House, Oakwood Grove, Leeds, 8. Yorkshire, England. Á umslaginu er póststimpill, stimplað í júní 1954.
Bréfið er til þeirra beggja, Sigurbjargar og Magnúsar, en stílað á Magnús.

Fundargerðir varðandi húsakaup

Fundargerðir bæjarstjórnar, bjæjarráðs og fjárhagsnefndar varðandi húsakaup. Minnst er á bæjarstjórana Björgvin Bjarnason og Rögnvald Finnbogason og húsið við Skagfirðingabraut 25.
Einnig varðandi hús Adolfs Björnssonar rafveitu
stjóra.

Framtíðin

Framtíðin. Framsóknarflokkurinn. Gefið út af stuðningsmönnum B-listans á Sauðárkróki. Útgáfuár óþekkt, líklega 1951-1955.

Samfylkingin - ýmis gögn

Samkomulag milli Framsóknarflokks og Samfylkingar í Sveitarstjórn Skagafjarðar 2006-2010. Einnig reglur varðandi starf Samfylkingarinnar í sveitarstjórninni og skipan sveitarstjórnarráðs.

Jólin

Kortið er stílað á Sigurbjörgu og Magnús, frá Steinunni og systkinum. Það er stimplað í Reykjavík, 18.12.1952

Poesiebók

Bók með uppskrifuðum kvæðum eftir ýmsa. Bókin er merkt Ingibjörgu og fremst í bókinni stendur: Til Imbu Stefánsd. frá Imbu Magnúsd.

Anna Pichler

Virðist vera viðbótarlýsing á kunnáttu Önnu Pichler frá St. Quirin / Tegernsee BAYERN, dagsett 30.05.1949.

Reykjavík

Varðar talstöðvar.
Bréfið er stílað á Braga Skúlason, formann Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar. Undirritað af Óskari Þór Karlssyni f.h. Slysavarnafélags Íslands.

Dreifibréf vegna kaupa á snjóbíl

Bréf frá framkvæmdarnefnd vegna kaupa á snjóbíl. Hefst bréfið svona: „Að tilhlutan Lionsklúbbs Sauðárkróks hafa klúbburinn ásamt Rauðakrossdeild Skagafjarðar, Sauðárkróksbæ og Skagafjarðarsýslu tekið höndum saman um kaup á snjóbíl í héraðið, sem nota skal til sjúkraflutninga og í öðrum neyðatilvikum, þegar öðrum tækjum verður ekki við komið.“
Halldór Hafstað skrifar undir, f.h. framkvæmdarnefndar.
Á bakhlið bréfsins eru handskrifuð drög að bréfi Braga Skúlasonar.

Reykjavík

Bréfið er stílað á Svein Sölvason, Slysavarnadeildinni Skagfirðingasveit.
Kvittun fyrir móttöku á rekstrarreikningi og félagstillag 1976. Meðfylgjandi er nóta og umslag.

Sauðárkrókur

Varða uppgöngustiga, krókstjaka og bjarghringi á trébryggjunni við syðra planið.
Undirskriftir: Magnús Sigfússon (f.h. Björgunarsveitar Skagfirðingasveitar) og Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson (f.h. Slysavarnadeildar Skagfirðingasveitar).

Stefán Stefánsson Brenniborg

Viðtöl við Stefán Stefánsson sem ýmist er kenndur við Brenniborg eða Brúnastaði. Stefán er 97 ára þegar viðtalið er tekið.
Stefán fæddist á Löngumýri og ólst upp á Skíðastöðum., fór í fóstur á nokkra staði eftir að hafa misst föður sinn 12 ára og eftir það suður til sjós. Lærði söðlasmíði á Fjalli og gekk í Flensborgarskólann. Stefán bjó 20 ár á Blönduósi og var einnig bóndi á Brenniborg.
Rætt um kenningar kristninnar og líf eftir dauðann. Einnig rætt um ýmsa samferðamenn Stefáns. Að lokum segir Stefán frá dulrænu atviki er hann var við smíðar og kaupavinnu á Sjávarborg.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Pétur Jónasson Sauðárkróki

Viðtal við Pétur Jónasson fyrrum hreppstjóra á Sauðárkróki.
Pétur rifjar m.a. upp bernskuminningar frá Enni, Syðri-Brekkum og Hofsstöðum.
Einnig frá vinnumennsku.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Friðrik Jens Friðriksson læknir

Sigurður Egilsson tekur viðtal við Friðrik J. Friðriksson lækni.
Ræða m.a. um byggingu Sjúkrahússins á Sauðárhæðum og aðdraganda þess.
Einnig ræða þeir um ferðalög Friðríks á Fjöllum, um Sprengisand, Hofsjökul og Helgrindur.
Sigurður og Friðrík fara báðir með kvæði.

Viðtalið tekið 1967.

Results 1 to 85 of 51719