Þrír óþekktir karlmenn, tveir þeirra með pípu. Einn heldur við reiðhjól og tjald stendur á bak við þá. Mennirnir eru óþekktir en í skýringum með myndinni segir "yfirmenn Eyjafjarðarárbrúar."
Þetta er Fríða á Bakka. Eftirsótt saumakona m.m. Saumaði m.a. fermingarfötin á Stebba í Vallholti, Stefán Íslandi. Bjarnfríður Þorsteinsdóttir f. 1894 á Auðnum í Sæmundarhlíð, d. 1977 á Sauðárkróki. Hér gefur hún hænsnunum á Bakka í Hólmi 1928. Stúlkan með henni er óþekkt. Sennilega Guðlaug Egilsdóttir.
Sex spariklædd börn í Hjaltastaðakoti í Blönduhlíð. Sigríður, Oddný, Guðlaug , Gottskálk, Steingrímur, Árni Helgi Hólm fremstur. Börn Ingibjargar Björnsdóttur og Egils Gottskálkssonar.
Heimilisfólkið á Syðri-Húsabakka 1927. F.v. Jóhanna Rannveig Pétursdóttir, vinnukona, óþekkt kona, Jón Kristinn Jónsson, bóndi, Kristín Sigurðardóttir, húsfreyja, börn hjóna Sigurður og Lilja fremst. Héraðsvötn að baki.
Heimilisfólkið á Syðri-Húsabakka. F.v. Jóhanna Rannveig Pétursdóttir f. 1909, d. 1993, vinnukona, óþekkt eldri kona, Jón Kristinn Jónsson, bóndi, Kristín Sigurðardóttir, húsfreyja. Börn hjóna, Sigurður og Lilja fremst. Mynd 1927.
Sesselía Ólafsdóttir f. 1909, d. 2005. Var til heimilis hjá Sigurlaugu og Bjarna á Uppsölum frá unglingsaldri til fullorðinsára. Fyrst á Völlum og síðar á Uppsölum. Húsfreyja í Litladal í Blönduhlíð og Daðastöðum á Reykjaströnd, síðast á Sauðárkróki. Mynd tekin á uppsölum 1927 eða 1928.
Heimilisfólkið á Uppsölum í Blönduhlíð 1928. F.v. Tobías Jóhannesson frá Hellu, vinnupiltur, Sigurlaug Jónasdóttir, húsfreyja með Egil Bjarnason á fyrsta ári, Bjarni Halldórsson bóndi, Sesselja Ólafsdóttir, Helga Sölvadóttir með Jónas Bjarnason, Halldór Bjarnason, Kristín Bjarnadóttir, Anna Kristín Jónsdóttir. (Betri mynd í Byggðasögu Skagafjarðar IV. bindi, bls. 387).
Fólkið á myndinni er óþekkt. Í skýringu sem fylgir myndinni segir "Siggi, Matthildur, Ólafur og Svafa." Sigurður Gíslason líkega aftastur. Janúar 1928.
Hópur fólks gæðir sér á nesti við torfbæ. Í bakgrunni er fallega hlaðinn veggur. Í skýringum við myndina segir "mjólkurdrykkja og skyrát." Myndin sennilega tekin að Saurbæ í Eyjafirði í september 1927.
Myndin er tekin á Stóru-Ökrum. F.v. Sigfús Stefánsson frá Bjarnastöðum, síðar í Flugumýrarhvammi, Árni Jónsson á Víðimel, Jón Agnarsson, sonur Agnars Baldvinssonar og Árnýjar Jónsdóttur, Garðar Jónsson, Syðstu-Grund, Friðjón Hjörleifsson, Ásgarði.
Á Syðstu-Grund 1927. F.v. Efemía Halldórsdóttir, húsfreyja, Salóme Halldórsdóttir systir hennar, Gísli Gottskálksson sonur Salóme, Garðar Jónsson frá Mannskaðahóli, fóstursonur Efemíu, síðar skólastjóri á Hofsósi.
Anna Kristín Jónsdóttir, áður húsfreyja á Völlum með dótturdóttur sína Kristínu Bjarnadóttur, síðar húsfreyju í Ásgeirsbrekku. Myndin tekin á Uppsölum, líklega 1928.
Heimilisfólkið í Syðra-Vallholti 1928. F.v. (Kristinn Gíslason 14 ára tökudrengur?) Gunnar Gunnarsson, bóndi, með Ingibjörgu dóttur sína, Ragnhildur Erlendsdóttir, húsfreyja, með Gunnar son sinn, stúlka ónafngreind, Ólöf Ingibjörg Björnsdóttir, bróðurdóttir Gunnars bónda, ónafngreind kona.
Vegamenn 1928. Vegagerð í Hólminum. F.v. Friðrik Friðriksson, Gunnlaugur Jónasson, Hátúni, Pétur Eiríksson, Guðmundur Jónsson, Jón Helgason, Garðar Hansen, Hallur Jónasson fyrir framan Garðar, Páll frá Húsey, Sigurjón Jónasson, Hátúni fyrir framan Pál.