Valný Georgsdóttir við affitunarvél í Sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Höskuldur, eiginmaður Valnýjar, fylgdi Loðskinn við flutninginn norður og þau störfuðu þar til 1985.
Fremst er unnið við svokallaða júmbóvél, sem var slípivél, þar við hliðina klippivél og innst strauvél. Í sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Starfsfólkið er ónafngreint.
Á kaffistofu Sútunarverksmiðju Loðskinns. F.v.: Baldvin Þóroddsson (starfaði sem tæknimaður í Þýskalandi en fyrirtæki sem hann starfaði hjá seldi Loðskinn ýmis efni til framleiðslu sinnar), Karl Bjarnason, Þorbjörn Árnason, Oddur Eiríksson.
Myndin er tekin við loðdýrabú Reynis Barðdal. F.v.: Reynir Barðdal, Þorbjörn Árnason, Pálína Skarphéðinsdóttir og Þórdís Þormóðsdóttir (fyrri kona Þorbjarnar).
Úr sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Lengst til vinstri er Þorbjörn Árnason, lengst til hægri Karl Bjarnason, en konan er ónafngreind. Viðskiptavinur að skoða ferlið.
Vinnsla í sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Vélarnar á myndinni eru svokallaðir mixarar. Fyrir miðri mynd eru Sigrún Guðmundsdóttir og Karl Bjarnason, hinir ónafngreindir.
Sýningarbás frá Sútunarverksmiðjunni á Vörusýningu sem UMF Tindastóll stóð fyrir í íþróttahúsinu á Sauðárkróki árið 1992. Maðurinn hægra megin á myndinni er ónafngreindur.
Vinnsla í Sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Efst á myndinni eru Jónheiður Sigurðardóttir og Halldóra Björnsdóttir. Framan við vagninn með gærunum eru f.v. Karl Bjarnason, Þorbjörn Árnason og ónafngreind kona. Lengst til hægri er Alexander Róbert Jónsson.