Showing 160 results

Archival descriptions
Magnús Kr. Gíslason: Skjalasafn
Print preview Hierarchy View:

Bréfritari: Ingvar Sigurðsson

Ingvar Sigurðsson skrifar Magnúsi.
Ath. Ingvar skrifar frá Móeiðarhvoli að mestu. Aftast í safninu er bréf undirskrifað af Ingvari H. Sigurðssyni, Glaumbæ. Um er að ræða Hjálmtý Ingvar Sigurðsson (1910-1979) en hann tók upp nafnið Hjálmtýr, breytti því síðan í Hallgrímur Ingvar Thorlacius. Ekki er á hreinu hvort um er að ræða þann sama og skrifar frá Móeiðarhvoli.

Bréfritari: Ninna J. Stevens

Ninna J. Stevens (f. 1903) skrifar Magnúsi. Hún var búsett í Blaine, Washington, USA. Hún var frænka Magnúsar, eða ritar þannig í sumum bréfanna. Það er þáttur um hana í Vestfirskum æviskrám IV, bls. 285-289. Hún hét Jónína Guðlaug Johnson, var fædd í Hallsonbyggð í North Dakota þann 7. febrúar 1903. Hún var söngkona. Maður hennar var Guðbjartur (Guðbert) Marshall Stevens, fæddur í Winnipeg þann 26. mars 1897.

Bréfritari: Óþekktur

Bréfið er á ensku og íslensku. Í haus þess er sama heimilisfang og í bréfi Wilhelms Anderson. Skrift er ekki samsvarandi við bréf Willhelms og ekki er ljóst hver bréfritari er. E.t.v. vantar eina síðu. Í forskoðun Hjalta er talað um afkomanda Björns Jónssonar frá Sleitustöðum.

Ýmis kveðskapur

Ýmis kveðskapur, að mestu eftir Magnús. Einnig kvæði undirritað af Bjarna Gíslasyni og vísur undirritaðar af St. St, Stefáni Stefánssyni frá Móskógum á Bökkum, Skagafirði.
Með er úrklippa úr blaði, minningagrein eftir Magnús í bundnu máli um Gísla Sigurðsson hreppstjóra á Víðivöllum, 1948.
Sum kvæði Magnúsar birtust seinna í bókinni Ég kem norðan kjöl (1954).

Ýmis gögn

119 blöð að mestu í A4 broti. Vélritað og handskrifað. Einnig umslög, stílabók og viðskiptabók við Séreignasjóð Sláturfélags Skagfirðinga. Einnig fleiri gögn, m.a. teikning af húsi. Annars að mestu leyti bókhaldstengt.

Siglufjörður

Ólöf Jóhannesdóttir (ath. Oddný Ólöf Jóhannesdóttir (1901-1972)) skrifar Ingibjörgu. Oddný bjó á Siglufirði.

Poesiebók

Bók með uppskrifuðum kvæðum eftir ýmsa. Bókin er merkt Ingibjörgu og fremst í bókinni stendur: Til Imbu Stefánsd. frá Imbu Magnúsd.

Reykjavík

Mamma Reynis Hjaltasonar skrifar honum. Reynir fæddist árið 1932 og lést árið 2007. Hann var í sveit á Vöglum.

Magnús Kr. Gíslason: Skjalasafn

  • IS HSk N00019
  • Fonds
  • 1906 - 1976

Ýmis skjalgögn frá Magnúsi Kr. Gíslasyni, Vöglum. Bréf, bókhald, kveðskapur, hreppsgögn o.fl.

Magnús Kristján Gíslason (1897-1977)

Results 86 to 160 of 160