Seðill sem inniheldur sundurliðaðar greiðslur til sveitarstjóðs Holtshrepps. Aftan á skjalið er handskrifað: "Framtal mitt er..." og síðan talinn upp bústofn framteljanda. Einnig er handskrifað með rithönd Hjalta Pálsonar byggðasöguritara: "Snorri Jónsson í Byttunesi drukknaði af Marianne 1922. HP."
Fjölrituð auglýsing með afrifumiðum sem ætlaðir eru til áskriftarpöntunar. Með fylgir bréf ætlað til að skrá pantanir og á það eru handskrifuð þrjú nöfn.
Bréf til kynningar á útgefnu efni frá Félagsprentsmiðjunni. Meðfylgjandi bréfinu er spjald í bókamerkisformi, með forskrift af íslensku stafrófi, ætlaðri börnum.
Skjal til undirritunar fyrir samskot í sjóðinn, undirritað af stofnendum sjóðsins. Á skjalinu eru nöfn tveggja gefenda, rituð með hendi Guðmundar Davíðssonar á Hraunum.
Tvær nýárskveðjur, skrifaðar á "ávísanir" frá Heilbrigðis- og hamingjubanka Íslands. Önnuð stíluð á Ólöfu Einarsdóttur á Hraunum frá Rósu Einarsdóttur en hin hjónin á Hraunum frá litla Birni í Hrúthúsum.