Borgin Stettin eða Szczecin var eitt sinn í Þýskalandi en eftir seinni heimsstyrjöldina tilheyrði hún Póllandi. Myndin er af Altes Rathaus (gamla ráðhúsið) við Heymarkt. Húsið er byggt úr rauðum múrstein í gothic stíl. Talið hafa verið byggt á 15. öld. Húsið er það eina sem eftir er af Stettin Altstadt (Gamla bænum) sem var eyðilagður að mestu árið 1945. Upphaflega hét húsið Neues Rathaus (Nýja ráðhúsið) því það kom í staðinn fyrir gamalt ráðhús á sama stað. Mun stærra ráðhús var byggt annars staðar 1869. Altes Rathaus skemmdist í seinni heimsstyrjöldinni en var endurgert árið 1968. Nú er að finna í húsinu veitingastað og safn.
Kirkjugarður - kirkja og bær á Keldum á Rangárvöllum. Fremst eru kartöflu- og blómagarður og kamar. Börnin sitja á Stóruskemmu. Þvottur er á snúrum og kerrur á hlaði.
Svana Theodórsdóttir (1922-1994) og Skúli Theódórsson (1925) í anddyrinu á Keldnabænum. Bak við Svönu eru dyrnar að Skálanum og sér þar í gamalt kirkjualtari. Til hægri sést í Saltkistuna fyrir gróft salt - en til vinstri er Stóra kistan. Í henni var geymt ómalað korn. Sjá nánar: Úr torfbæjum inn í tækniöld III - bls. 87.
Á Fjósum í Svartárdal - Hún. F.v. Sigfús Eyjólfsson (1878-1956) bóndi - Kristvina Kristvinsdóttir (1883-1959) Unnur B. Gísladóttir (f. 1931) Jósef Sigfússon (f. 1921) Jón Hjálmarsson (f. 1925)
Kristín Halldórsdóttir (f. 1927) á Skottastöðum í Svartárdal í fagurlega hlöðnum bæjargöngum á Skottastöðum. Að baki hennar sést í hlóðirnar. Til vinstri sér í fót Halldórs bónda Jóhannssonar. Bruno skrifaði að hliðargangurinn til vinstri sé aðeins 1 -4 metrar á hæð og að baki telpurnnar er fjóshurðin 1 -15 x 0 -60 cm.
Fjölskyldan á Tindum í Svínavatnshreppi - A-Hún í garðinum framan við húsið. Lengst t.v. Guðrún Erlendsdóttir húsfreyja og Kristín Sigurjónsdóttir dóttir hennar. Baka til eru Erlendur Sigurjónsson með svarta húfu og Sigurjón Þorláksson bóndi (með derhúfu) Framan við þá er yngsta barnið - Guðrún Sigurjónsdóttir - en lengst til hægri sumardvalardregnurinn Jóhannes Hansen - síðar bílstjóri á Sauðárkróki.
Fjölskyldan framan við bæinn að Leifsstöðum í Svartárdal Hún. F.v. Þóra (f.1925) - síðar í Hvammi. Sigurbjörg (f. 1931) síðar húsfr. á Leifsstöðum. Björn (1930-1988) - Guðrún Sigríður (1924-1975). Ingibjörg Sigurðardóttir húsfreyja (1894-1959). Aðalsteinn (f. 1930) síðar bóndi Leifsstöðum. Sigurður Benediktsson bóndi (f. 1885 d. 1974) - Soffía (1917-1968) heldur á Hilmari Eydal Valgarðssyni (1934-1974) syni sínum. Guðmundur (f. 1922 d. 1996) og Sigurður (f. 1926 d. 1984)
Í heyhlöðunni í Múlakoti í Fljótshlíð. Frá vinstri eru börn Ólafs og Láru. Guðný Fjóla (f. 1931) - Guðbjörg Lilja (f. 1928 d. 1976) og Karl Reynir (1925-2000) í rólunni. Hægra megin stendur Soffía Gísladóttir (f. 1915) og lengst til vinstri Vigdís Eyjólfsdóttir (1893-1977) bróðurdóttur Guðbjargar í Múlakoti.
Í gömlu heyhlöðunni í Múlakoti - Rangárvallasýslu. Frá vinstri: Fjóla - Guðbjörg og Reynir í rólunni. Ólafsbörn Túbals. Síðan Soffía Gísladóttir (fædd 1915) - yst til hægri er Ásta Maríudóttir. Móðir hennar var Vigdís Eyjólfsdóttir - bróðurdóttir Guðbjargar í Múlakoti.
Í Múlakoti 1935. Reynir Túbals - Þorbjörg Jónsdóttir og Jón Ingi Jónsson (1911-1996 eða 1997) - síðar bóndi í Deild í Fljótshlíð og Dufþaksholti í Hvolhreppi.