Pappírsgögn sem voru í fundagerðabók Hrossaræktarfélag Skefilsstaðahrepps. Í safninu eru 4 skýrslur, tvær eru útfylltar, tvær eru óútfylltar - Kvittanir fyrir greiðslum - sóknargjöld pr. bæ í Skefilsstaðahreppi 1956 - Umslag sem er stílað á hrossaræktarfélagið, í því er "afklipping".
Bókin inniheldur handskrifaðar fundagerðir og efnahagsreikninga Hrossaræktarfélags Skefilsstaðahrepps. Í bókinni voru skýrslur, kvittanir, umslag með afklippingu og skrá yfir greidd sóknargjöld í hreppnum. Í síðustu fundargerðinni 9/4 1955 er rædd sú hugmynd um að félagið gerist aðili að hrossaræktarfélagi Búnaðarsambandi Skagfirðinga.
Mennirnir við girðinguna f.v. Björn Guðnason, Jóhann Guðjónsson (Jói múr) og Friðrik Jónsson (Fíi), eru væntanlega að huga að byggingu Safnahússins, en bygging þess hófst árið 1965. Drengurinn næst í mynd er Torfi Ólafsson (frá Skarði).
Bygging Safnahússins, steypuvinna. Við bílinn (K 480) er Valgeir Guðjónsson, Daufá. Á uppslættinum eru F.v. Björn Guðnason, 2 óþekktir, Hilmar Jónsson, Guðjón Einarssonn og óþekktur.
Bréf: v/ námskeið hjá atvinnulausum - v/ sameining verkalýðsfélaga og lífeyrissjóða - kauptaxtar - samningur Alþýðusamband Norðurlands og sjúkrahúsin á Norðvesturlandi - kvittun Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir móttöku gagna frá Öldunni.
Bréf: v/ rekstrarstöðvun og -erfiðleikar hjá Dögun - uppsögn á bónussamningi starfsfólk hjá Dögun - kauptaxtar - v/ vaktavinna í Fiskiðjunni - samkomulag Aldan - Fram og Dögun - v/ hóppremía - samningur v/ lífeyrissjóð.
Bréf: Heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytið v/starfsfólk sjúkrahúsa - könnun v/ sláturtíð og sviðahausa- KS og slátursamlag Skagfirðinga - Alþýðusamband Norðurlands - Samband samvinnufélaga - útnefning í úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta á Sauðárkróki - Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki v/ kjör í mötuneyti og ræstingu (launamiðar) - VMSÍ m.a. uppsagnir starfsfólks á sjúkrahúsum.
Bréf: VMSÍ v/kjaramál og félagslegt húsnæði - Fram v/ verðlagsmál - úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta- verkalýðsfélögin á Sauðárkróki - nauðungaruppboð á íbúðum - beiðnir um leigu á verkamannabústöðum frá eigendum og sölulisti- sótt um stærri íbúðir.
Bréf: samkomulag um kaup og kjör í skólamötuneytum við Alþýðusamband Íslands - yfirlýsing frá fjármálaeftirlitinu um kaup og kjör þrifafólks í skóla - KS vegna uppsagnar - atvinnuleysisskrá - inntaka og úrsögn úr Öldunni.
Innbundin bók sem inniheldur félagaskrá og lög Vkf Öldunnar frá 1938-1955. Bókin var í safni B1, hún er vel læsileg og sæmilega varðveitt en búið er að rífa nokkar blaðsíður úr bókinni og hluta af félagatali ársins 1939. Í bókinni eru persónugreinanlegar upplýsingar.
Pappírsgögn sem innihalda umsóknir um dagpeninga úr sjúkasjóði, einnig eru veikindavottorð frá læknum í safninu. Um persónugreinanlegar trúnaðarupplýsingar er að ræða.
Bréf: samningur- Aldan og atvinnurekendur á Sauðárkróki - kauptaxtar verkalýðsfélaga á Norðurlandi - kauptaxtar Fram og Aldan - kauptaxtar við vega- og brúargerð - mánaðarkauptaxti iðnverkafólks í verksmiðjum Akureyrar - ASÍ og Vegagerðin -fæðispeningar - Iðja - kauptaxtar.
Bréf: lög félagsins - miði á afmælishátíð Öldunnar - fundargerð 26. mars 1969 - símskeyti - vegna vangoldin laun - reglugerð um sjúkrasjóði - v/ skipulags- og laganefnd - v/ verkföll - áskorun til Sauðárkróksbæjar að bæta atvinnuástandið - Fiskiðjan v/rækjuvinnsla - milliþinganefnd á 30. þingi ASÍ - skýrlsa vegna sýninga í Bifröst - v/aðalfund Bifröst - ASÍ v/rækjuvinnsla í Fiskiðjunni - Landsmót Hólum 1966 - o.fl.
Bréf: Verslun Sigurðar Sigfússonar v/ hraðfrystistöð og fiskimjöl v/ dómsmál - v/ viðræður um atvinnumál á svæðinu - innritunarskírteini - breyting á samningi við atvinnurekendur - verkfallsboðun - v/ brot á samningum- Sigurður Sigfússon og félög.
Bréf: 1.maí ávarp - lög félagsins - áskorun til Sauðárkróksbæjar að bæta atvinnuástandið - kjörbréf- Hulda Sigurbjörnsdóttir - samningur Þróttur og Brynja og vinnuveitendur á Siglufirði - fundargerð 30/9 1960 - listi- stjórn og nefndir - lög og reglur félagsins - samingur við atvinnurekendur á Sauðárkróki og fleira.
Mynd tekin á íþróttavellinum (malarvellinum) Aftasta röð f.v. óþekktur, Jón Magnússon, Árni M Jónsson og Marteinn Friðriksson. Næst aftast f.v. Magnús Sigurjónsson, Magnús Jónsson og Guttormur Óskarsson. Næst fremstir f.v. Sigurður P Jónsson, Sveinn Guðmundsson og Ingimar Bogason. Fremstur er Friðrik Júlíusson (ca.1955-1960).
Í safni sem var D1 eru innbundnar bækur og pappírsgögn, sum í tvíriti, önnur eru afrit af skjölum. Gögnin tengjast úthlutunum á atvinnuleysisbótum, úr sjúkarsjóði einnig örorku og ellilífeyri. Um er að ræða persónugreinanleg gögn og trúnðaðarmál. Safnið er vel varðveitt.
Í safninu eru forprentuð og handskrifuð skjöl í afriti með yfirlit yfir greiddar atvinnuleysisbætur, einnig vélrituð dagpeningavottorð með stimpli frá vinnumiðlun Sauðárkrókskaupstaðar (sum skjölin eru í tvíriti) og umsókn um örorku- ellilífeyri. Á skjölunum eru persónugreinanlegar trúnaðarupplýsingar.