Showing 537 results

Archival descriptions
Kvenfélag Rípurhrepps: Skjalasafn
Print preview Hierarchy View:

Kvenfélag Rípurhrepps: Skjalasafn

  • IS HSk N00062
  • Fonds
  • 1950 - 2014

Bréf, fundagerðir, ársskýrslur o.fl. gögn. Allnokkrar öskjur.

Kvenfélag Rípurhrepps (1951-)

Fundargerð 81. aðalfundar Sambands norðlenskra kvenna

Fundargerð 81. aðalfundar Sambands norðlenskra kvenna haldinn að Löngumýri í Skagafirði, 11. - 12. júní 1994. Handskrifaðar undirritanir (ljósrit).
Meðfylgjandi er listi yfir formenn kvenfélaga í S.S.K. 1994, auk stjórnar S.S.K. og Orlofsnefnd. Einnig heimsóknir kvenfélaga til Sjúkrahúss Skagfirðinga. Nafnið Sigrún ritað á það blað. (Líklega Sigrún Hróbjartsdóttir formaður Kvenfélags Rípurhrepps).

Aðalfundur Sambands skagfirskra kvenna

Aðalfundur Sambands skagfirskra kvenna haldinn í Ljósheimum 15. apríl 2012. Jóna Ólafía Jónsdóttir, vararitari, skrifar undir fundargerðina. Meðfylgjandi er bréf frá formanni Sambands skagfirskra kvenna, Sigríði Garðarsdóttur. Það er dagsett í Miðhúsum 27. september 2012.

Sauðárkrókur

Efni bréfs: Bréfið er frá sýslumanninum í Skagafjarðarsýslu og er þakkarbréf frá Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu fyrir auðsýndan áhuga á fjáröflun til fyrirhugaðrar sjúkrahússbyggingar á Sauðárkróki.
Bréfið er stílað til Ólafar Guðmundsdóttur, Ríp, forstöðukonu kvenfélagsins í Rípurhreppi.

Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu (1874-1988)

Reykjavík

Efni bréfs: Varðar Kvennasögusafn Íslands, undirskriftir: Anna Sigurðardóttir (handskrifuð) og Else Mia Einarsdóttir.
Seinna bréfið er dagsett í október 1975.

Vík

Efni bréfs: Til formanna og stjórnarkvenna í kvenfélögum í Skagafirði og fjallar um það sem er á döfinni árið 2009. Handskrifuð undirskrift Ingibjargar Hafstað.
Meðfylgjandi eru upplýsingar um námskeiðið Konur kalla ... KÍ 2009.

Sauðárkrókur

Efni bréfs: Varðar sameiginlegt átak héraðsskjalasafna og Kvenfélagasambands Íslands um söfnun skjala kvenfélaga um land allt. Handskrifuð undirskrift Unnars Ingvarssonar, héraðsskjalavarðar.
Meðfylgjandi er bæklingurinn Héraðsskjalasöfnin, Miðstöðvar heimilda um byggðalag þitt.

Sauðárkrókur

Efni bréfs: Varðar Vinnuvökuna, 28. - 29. mars 2009 í Varmahlíðarskóla. Handskrifaðar undirskriftir Vinnuvökunefndarinnar:
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir
Sigþrúður Sigurðardóttir
Birna E. Stefánsdóttir
Helga Haraldsdóttir

Hallveigarstaðir

Efni bréfs: Varðar 35. Landsþing Kvenfélagasambands Íslands, 26. - 28. júlí 2009.
Meðfylgjandi er kjörbréf, þátttökueyðublað, gistimöguleikar, hluti af lögum og tillögur.

Vinnuvakan

Varðar Vinnuvökuna í Varmahlíðarskóla, 21. mars 2010.
Nefndin:
Eik Elfarsdóttir, Kvenfélagi Hólahrepps
Ingibjörg Ólafsdóttir, Kvenfélagi Hofshrepps
Jónína G. Gunnarsdóttir, Kvenfélagi Seyluhrepps
Sigríður M. Helgadóttir, Kvenfélagi Seyluhrepps
Sigurlaug Kr. Konráðsdóttir, Kvenfélagi Akrahrepps

Sauðárkrókur

Efni bréfs: Þakkarbréf fyrir peningagjöf, stílað á formann Kvenfélags Rípurhrepps, Salbjörgu Márusdóttur. Handskrifuð undirskrift: Ólafur Sveinsson.

Garðabær

Bréf frá Sigurlaug Viborg, forseta Kvenfélagasambands Íslands. Bréfið varðar starfið á árinu og er vísað í meðfylgjandi plagg, fréttapunkta Hildar Helgu Gísladóttur, framkvæmdastjóra KÍ. Einnig eru meðfylgjandi upplýsingar um ferð á Norrænt sumarþing kvenfélaga, haldið í Vasa og Korsholm í Finnlandi 19. - 24. ágúst 2010.

Results 1 to 85 of 537