Harðspjalda handskrifuð fundargjörðabók í góðu ástandi. Hún virðist vera nýlega skrifuð ( gæti verið Árni Bjarnasson sem skrifar ) upp úr gögnum gjörðabóka en í upphafi bókar sem hefur titil Úrdráttur úr fundargjörðum búnaðarfélags Akrahrepps og störf þess til 1892. eru skrifaðar upplýsingar er koma fram í eldri gögnum safnsins. Lítur út eins og verið sé að hreinskrifa upplýsingar.
Sigurður Björnsson sækir um byggingarleyfi fyrir íbúðarhúsi á jörðinni Stóru-Ökrum 1. Teikningu gerði Byggingastofnun landbúnaðarins. Umsókn dagsett 20.04.1977. Teikning fylgir ekki.
Myndin er tekin á Stóru-Ökrum. F.v. Sigfús Stefánsson frá Bjarnastöðum, síðar í Flugumýrarhvammi, Árni Jónsson á Víðimel, Jón Agnarsson, sonur Agnars Baldvinssonar og Árnýjar Jónsdóttur, Garðar Jónsson, Syðstu-Grund, Friðjón Hjörleifsson, Ásgarði.