Anna Lísa og Frank sonur Páls Michelsens um borð í kassabíl. Aage Michelsen bakvið bílinn. Kassabílar voru uppáhald leikföng margra krakka á Króknum og var þessi kassabíll knúinn með keðjum sem án efa hefur létt á drættinum.
Talsvert af síld var saltað á Sauðárkróki. A.m.k. 60 konur vorum um tíma skráðtar til vinnu við söltunina. Söltun Sauðkrækinga var þó aðeins brot af því sem var víða annars staðar fyrir Norðurlandi. Myndin gæti verið tekin árið 1942. Járnbrautarteinarnir sjást vel á myndinni. Við myndina stendur: Hulda Bubba, Bibba Þorvaldar, Ólafía Pétursdóttir, Ingibjörg Konráðsdóttir, Lína "Ingveldastaða", Jón Sig Ketu og Pála Sveinsdóttir
Michelsens fjölskyldan var með kanínur sem var afar fátítt á Sauðárkróki, ef ekki einsdæmi. Ekker laust við að kanínubúskapur hafi farið nokkuð fyrir brjóstið á Sauðkrækingum sem áttu fremur að venjast áti á sauðkindum ekki ekki þessum vinalegu dýrum. Á myndinni eru Aðalsteinn, Aage og Pála Elínborg.
Mynd tekin á Aðalgötu á Sauðárkróki, Fremstur er Aðalsteinn Jónsson, stúlkurnar tvær eru María Guðlaug Pétursdóttir og Steinunn Aðalheiður Rögnvaldsdóttir.
Halldór "Dóri skó" Stefán Halldór Halldórsson Fæddur í Stóra-Dunhaga í Hörgárdal, Eyj. 11. nóvember 1880 Skósmiður á Sauðárkróki 1930.
Tilgáta um Jóhann Eiríkur Jónsson Fæddur á Sauðárkróki 19. ágúst 1921 Látinn 20. mars 2004 Var á Siglufirði 1930. Heimili: Sauðárkrókur. Var á Beinakeldu í Torfalækjahr., A-Hún. 1957. Bóni og frjótæknir á Beinakeldu. Síðast bús. þar.
Svartahúsið við Aðalgötu 16b. óþekktar konur en við myndina stendur ábúendur í Svartahúsinu eru Guðmundur Sigvaldsson (verkamaður í norðurenda) og Valdimar (jónsi) sjómaður í suðurenda.