Sveitablaðið Viljinn sem gefinn var út af Lestrarfélagi Miklabæjarsóknar í Blönduhlíð. Í þessu fyrsta blaði er rakin ástæða og fyrirkomulag blaðsins. Forsagan var þessi: "Hinn 23. f.m. var lestrarfélagsfundur haldinn á Miklabæ. Kom fram sú tillaga á fundinum að bæði skemtilegt og gagnlegt væri að láta blað ganga á milli félagsmanna í vetur. Var rætt af kappi um þetta mál og voru allir með því að það fengi framgang. Var ritstjóri fenginn og kosnir menn í ritneefnd. Blað þetta skyldi aðeins ganga millum félagsmanna og þeir skyldugir til að láta það ganga greiðlega milli sín; fara vel með það styðja það eptir föngum með því að senda ritgjörð í það. Blaðið á að sneiða hjá ókurteislegum rithætti og öllu því er gæti öllað ófrið og sundrung. Samt muna menn rita um ýmisl. sem þörf virðist vera að ræða um og láta í ljósi skoðanir sínar á þessu og hinu; aðeins þetta að fylgja sannfæringu sinni með kurteisi fram á ritvöllinn. Slíkt blað, og hér er um að ræða yrði óefað gagnlegt og skemtilegt; já gagnlegt yrði það með því að þar gæfist mönnum kostur á, að hugsa og skipulega æfa sig í þessu hvorutveggja sem virðist mjög nauðsynl. einkum fyrir unga menn, sem verða að taka við störfum og stríði hinna eldri, og fylgja kröfum þeim, sem yfirstandandi tími heimtar af börnum sínum."
Efni bréfs: Haustvaka kvenfélaganna 2003, í umsjá Kvenfélags Staðarhrepps í Félagsheimilinu í Melsgili, 19. október. Handskrifuð undirskrift Ingibjargar Hafstað.
Efni bréfs: Til formanna og stjórnarkvenna í kvenfélögum í Skagafirði og fjallar um það sem er á döfinni árið 2009. Handskrifuð undirskrift Ingibjargar Hafstað. Meðfylgjandi eru upplýsingar um námskeiðið Konur kalla ... KÍ 2009.
Innbundin, handskrifuð og vel læsileg bók þar sem haldið er utan um félagatal U.M.F.T. og mætingar á fundi félagsins tímabilið 1925-1937, einnig er yfirlit yfir heiðursfélaga. Bókin hefur varðveist ágætlega.
Viðurkenning til handa Kvenfélagi Rípurhrepps fyrir höfinglegt fjárframlag til öldrunarmála í Skagafirði. Söfnunina annaðist Lionsklúbbur Sauðárkróks. Sauðárkróki í febrúar 1986. Handskrifaðar undirskriftir: Sæmundur Á. Hermannsson, f.h. Öldrunarnefndar Skagafjarðar og sr. Hjálmar Jónsson, f.h. Lionsklúbbs Sauðárkróks.
Viðurkenning Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins til Kvenfélagasambands Íslands fyrir að styrkja ímynd öldrunar og öldrunarþjónustu með virku starfi sínu. Dagsett 27. apríl 2001. Handskrifuð undirskrift: Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.