Í Bifröst, frá vinstri; Ari Björn Sigurðsson (1973-), Pétur Örn Erlingsson (1975-), Garðar (sonur Heru í bankanum), Atli Björn Þorbjörnsson (1976 -), Ellert Jóhannsson (1973-) og Sigurlaug Gunnarsdóttir (1974-).
Fjórar leikaramyndir, tvær þeirra prentaðar sín hvoru megin á pappírsörk og tvær á nokkurs konar umslag. Myndirnar eru úr safnseríu sem fylgt hefur danska tímaritinu Familie Journal. Ástand skjalanna er gott.
Leikfélag Sauðárkróks setti upp leikritið Galdra-Loft eftir Jóhann Sigurjónsson árið 1960. Það var frumsýnt 13. desember. Leikstjóri var Eyþór Stefánsson.
Frétt send Degi á Akureyri á Öskudag 1955 þar sem fjallað er um sýningu Leikfélags Sauðárkróks á leikritinu Orðið eftir Kaj Munk, leikstjóri var Eyþór Stefánsson.
Gögnin, bækur og pappír segja sögu félagsins þennan stutta tíma. Þau hafa verið hreinsuð af heftum og eru vel læsileg. Gögnin komu vel flokkuð og eru látin halda sér þannig eftir uppfærslu.
Skjalasafn Klemenensar Guðmundssonar. Fyrst og fremst uppskrifaðar, handskrifaðar stílabækur frá námstíma Klemensar í Víkurskóla, Skagafirði, veturinn 1909-1910. Einnig þrjár ljósmyndir.
Úr "Manni og Konu". Leikendur frá vinstri: Guðjón Sigurðsson: Hallvarður. Þórður P. Sighvatsson: Egill. Sigurður P. Jónsson: Grímur meðhjálpari. Agnar Baldvinsson: Bjarni á Leiti.
Leikendur í "Ævintýri í Rósenborgargarði". Efri röð frá vinstri: Valgarð Blöndal- Pétur Hannesson- Guðrún Þorsteinsdóttir frá Álfgeirsvöllum og Eysteinn Bjarnason. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Halldórsdóttir- Jórunn Hannesdóttir- Sigríður Sigtryggsdóttir og Margrét Pétursdóttir. Gefandi 1979: Hannes Pétursson.
Hópmynd af leikhópi. Aftan á myndinni stendur "Leikrit: Frænka Charles". Aftari röð: Sigríður Sigtryggsdóttir, Magnús halldórsson, Snæbjörn Sigurgeirsson, Pétur Hannesson, Páll Jónsson. Fremri röð: Jóhanna Linnet, Sigurbjörg Jónsdóttir, Lárus Blöndal, Sigríður Blöndal (Þorgrímsdóttir), Guðmundur Björnsson. Mynd þessi birtist í Sögu Sauðárkróks blaðsíðu 377.