Minnisvarði um bræðurna á Víðivöllum, Pétur Pétursson biskup, Jón Pétursson háyfirdómari og Brynjólfur Pétursson Fjölnismaður. Víðivellir er bær í Blönduhlíð í Skagafirði, gamalt höfuðból þar sem oft bjuggu höfðingjar, til dæmis ýmsir sýslumenn Skagafjarðarsýslu. Kirkja var á Víðivöllum til forna en var aflögð 1765. Dálítill jarðhiti er á tveimur stöðum í landi jarðarinnar og þar var steypt upp sundlaug árið 1937-38 og var notuð til sundkennslu fram yfir 1960 en nýtt eitthvað lengur til sunds. Eyðibýlið Örlygsstaðir er í landi Víðivalla. Þar var Örlygsstaðabardagi háður 21. ágúst 1238 og er talið að þar hafi barist hátt í þrjú þúsund manns. Minnisvarði um bardagann var afhjúpaður 21. ágúst 1988, 750 árum eftir að hann var háður. Á Víðivöllum fór fram síðsta aftaka í Skagafirði 1789. Var þar hálshöggvin kona úr Fljótum sem hafði fætt barn sumarið áður, fyrirkomið því og grafið. Frá 1809-1842 bjó þar Pétur Pétursson prófastur með Þóru Brynjólfsdóttur konu sinni og þar ólust upp synir þeirra, þeir Jón Pétursson háyfirdómari, Pétur Pétursson biskup og Brynjólfur Pétursson Fjölnismaður, um skeið forstöðumaður íslensku stjórnardeildarinnar í Kaupmannahöfn , oft nefndir Víðivallabræður. Minnisvarði um bræðurna var reistur skammt frá bænum 1998. Í Íslandsheimsókn Kristjáns konungs 10. sumarið 1936 kom hann við á Víðivöllum ásamt fylgdarliði og borðaði hádegisverð í tjaldi á Víðivallatúni. Dr. Sturla Friðriksson t.v. á myndinni flytur hátíðarræðu, en hann var einn af hvatamönnum þess að minnisvarðinn var reistur.
Skagfirðingar, hugsanlega eldri borgarar á ferð í Lónkoti við minnisvarða um Sölva Helgason. F.v. Haraldur Hermannsson (sér á bak), Anna Pála Guðmundsdóttir, Sigurlaug Guðmundsdóttir, Kári Steinsson (fjær), Hrólfur Jóhannesson, Magnús Jónasson, Birna Guðmundsdóttir, Ágústa Jónasdóttir t. v. við súluna. Aðrir óþekktir.
Afhjúpaður minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð í rjóðri við bæjartóftir Laugarbrekku í Reykjarhólnum í september 1996. F.v. Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurður Sigurðsson barnabörn Sigurðar, en þeir afhjúpuðu minnisvarðann þá sr. Gunnar Gíslason, Magnús Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, óþekktur og Þórarinn Sólmundarson.
Minnisvarði um Sigurð Jónasson skógarvörð afhjúpaður í skógræktarstöðinni Laugarbrekku í Varmahlíð haustið 1996. F.v. Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurður Sigurðsson barnabörn Sigurðar, þá sr. Gunnar Gíslason, óþekktur, Magnús Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar og Þórarinn Sólmundarson.
Minnisvarði um landspóstana á Stað í V-Hún. Á Stað í Hrútafirði var viðkomustaður landspóstsins áður en vegur og bílaumferð komst á yfir Holtavörðuheiði og árið 1993 var reistur þar minnisvarði um landspóstana. Kirkja er á Stað. Mennirnir tveir fyrir miðju eru bræðurnir Magnús (t.v.) og Eiríkur Gíslasynir frá Stað.
Afhjúpaður minnisvarði um Sigurð Jónasson varðstjóra - í Varmahlíð. Talið f.v.: Sr. Gunnar Gíslason prestur í Glaumbæ - Magnús Sigurjónsson Sauðárkróki og óþekktur.
Landsmót UMFÍ í Mosfellsbæ 12. – 15. júlí 1990 Ungmennasamband Kjalarnesþings sá um undirbúning og framkvæmd mótsins en það fór fram dagana 12. – 15. júlí.
F. v. Eyþór Stefánsson - Guðjón Ingimundarso (en þeir voru í undinbúningsnefnd) Ríkharður Jónsson og Magnús Gíslason. Tekið við undirbúning minnisvarða Stephans G. Stephanssen. Frá vinstri Eyþór Stefánsson - Guðjón Ingimundarson og óþekktir.
Tilg. T.v. Ríkharður Jónsson og Hróbjartur Jónasson (en hann sá um að reisa minnisvarðan) Tekið við undirbúning minnisvarða Stephans G. Stephanssen. Menn óþekktir. Búið að setja upp mót.
T. v. við minnisvarðan er Eyþór Stefánsson en Ríkharður Jónsson t.h. Tekið við undirbúning minnisvarða Stephans G. Stephanssen verið að setja klæði áður en afhjúpun á sér stað.
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955. Aftan á hana er skrifað: "Stytta Jóns Sig. og stúlkan sem lagði blómsveiginn. Hún heitir Margrét og maður hennar, Þorsteinn er prentari hjá öðru dagblaðinu hér."
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955. Aftan á hana er skrifað: "Styttan af Jóni Sig. í þinghúsgarðinum og blómsveigur sem lagður að henni 17. júní. Krakkarnir eru íslenskir."
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955 Aftan á hana er skrifað: "Bragi Melax og ég fyrir framan styttuna af Jón Sig. í þinghúsgarðinum, hún er eins og sú á Austurvelli.
Myndin er tekin í Manitoba 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þinghúsið í Manitoba. Þetta er mjög fallegt hús og fyrir framan tröppurnar sést minnismerki af Viktoríu drottningu. Í garðinum er stittan af Jóni Sig."
Myndin er tekin í Manitoba 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er tekin inní andyri Þinghússins. Þessi vísundur er í fullri stærð og annar stendur hinu megin við stigann. Þeir eru baðir úr bronsi, en annars er húsið allt úr steini."
Markús Sigurjónsson - Reykjarhóli (t.h. við ræðupúltið) - þá Eyþór Stefánsson (með Gleraugu) Guðjón Ingimundarson (1915-2004) í ræðustól. Minnisvarði Stephans G. Stephanssen afhjúpaður á Arnarstapa.