Showing 143 results

Archival descriptions
Vestur-Íslendingar With digital objects
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

Mynd 98

Fólkið á myndinni er óþekkt.
Aftan á myndina er skrifað:
"Carmine og Eurico og ég. Autonette konan hans tók myndina sama sunnudag."

Mynd 97

Fólkið á myndinni er óþekkt.
Aftan á myndina er skrifað:
"Þetta er Silvía dóttir Gunnlýgs bróðir míns og heit bróðir hennar."

Mynd 96

Óþekkt kona fyrir framan hús. Myndin er tekin í Vesturheimi.
Aftan á myndina er ritað:
"Þetta eru tröppurnar á húsinu sem ég bý í. Stóri glugginn var á setustofunni minni. Eins og ég sagði í bréfinu, þá hefi ég flutt upp á sjötta gólf., svo þetta er ekki glugginn minn lengur."

Mynd 90

Tvær óþekktar konur. Myndin er tekin við járnbrautastöð í Vesturheimi.
Aftan á hana er skrifað:
"Þetta er mágkona mín og ég í haust."

Mynd 89

Tvær óþekktar konur vinna við hannyrðir utan dyra. Myndin er tekin í Vesturheimi.

Mynd 87

Fjórir óþekktir karlmenn. Samkvæmt upplýsingum sem ritaðar eru framan á myndina er hún tekin upp á Flöebanen í Bergen árið 1926.

Mynd 86

Konurnar á myndinni eru Halla Petersen og Stefani Johnson, skv. upplýsingum sem eru ritaðar aftan á myndina.

Mynd 84

Konan í upphlutnum heitir Helga Jónsdóttir og sú í kjólnum heitir Hildur.
Aftan á myndina er skrifað:
"Reykjavík 21/3 1912. Kæra Guðbjörg mín. Jeg hef að öllum líkindum ekki breyst svo mikið að þú þekkir mig ekki, en samt þori jeg ekki annað en segja þjér að jeg er sú sem er í upphlutnum, en Hildur sem er á kjólnum. Skilaður kærri kveðju til alls heimilisfólksins, svo er jeg. Þín einlæg frænka Helga Jónsdóttir."

Mynd 82

Á myndinni eru níu óþekktar konur. Flestar eru þær í íslenskum búningum.

Mynd 8

Maðurinn og barnið á myndinni er óþekkt en aftan á hana eru skrifaðar þessar upplýsingar:
"Þetta er af pabba í sumar, tekið framan við húsið heima."

Mynd 7

Maðurinn á myndinni er óþekktur en aftan á hana eru skrifaðar þessar upplýsingar:
Guido. 16. júlí 1984.

Mynd 63

Börnin á myndinni eru óþekkt.
Myndin er merkt Sigríði Magnúsdóttur á Hofsósi og virðist hún því hafa fengið hana senda.

Mynd 61

Samkvæmt upplýsingum á myndinni er maðurinn á myndinni annað hvort Sigurbjörn Bjarnason eða Guðmundur Bjarnason, bróðir Bjargar Bjarnadóttur í Borgargerði, en þeir fóru báðir til Vesturheims. Myndin var send Björgu Bjarnadóttur í Borgargerði.

Mynd 60

Fimm óþekkt börn.
Aftan á myndina er ritað:
"Sigríður Magnúsdóttir með lukku ósk frá S. Þórarinsdóttur."

Mynd 6

Fólkið á myndinni er óþekkt en aftan á hana eru skrifaðar þessar upplýsingar:
"Við systurnar Stefanía, Ólöf, ég og maðurinn minn, Páll, daginn sem við giftum okkur, 1970."
Bætt hefur verið við þeim upplýsingum að sé sem merkir myndina sé Ingibjörg og þær séu dótur Ingólfs Eiríkssonar.

Mynd 56

Fólkið á myndinni er óþekkt.
Aftan á myndina er rituð eftirfarandi jólakveðja:
"August 1919 Svevig. Glædelig julog mange velige hilser fra deres danske venner E og S Paulli."

Mynd 5

Fólkið á myndinni er óþekkt en aftan á hana eru skrifaðar þessar upplýsingar:
"Júlína og Ingólfur. Mamma og pabbi á gullbrúðkaupsdaginn sinn."

Mynd 44

Á myndinni eru óþekktur maður í hermannabúningi með byssu um öxl.
Aftan á myndina er skrifað:
"Sonur Björns Skagfjörð í Ameríku."

Mynd 41

Stúlkurnar á myndinni eru Allison Ral 7 ára og Amber Jill 4 ára.
Aftan á myndinni, neðan við nöfn og aldur stúlknanna stendur:
"Gíslason Arborg Mane Canada. Dec 1980."

Mynd 40

Fjórar óþekktar konur.
Aftan á myndina er skrifað:
"Fríða, Þóra, Þore, Aldís."

Mynd 4

Stúlkan á myndinni er óþekkt.
Aftan á myndina eru ritaðar eftirfarandi upplýsingar:
"Fríða. Klædd í grímubúning "Bandaríkjafáninn".
Tekið í júlí 1921.

Mynd 39

Þrjár óþekktar konur.
Aftan á myndina er skrifað:
"Þetta erum við þrjár sistur Lauga til vinstri, jeg í miðið og Björg til hægri."

Mynd 37

Passamynd. Stúlkan á myndinni er Karen, 10 ára gömul.
Hún er afkomandi Reykjavallahjóna Guðríðar og Guðmundar Skúlasonar. Dórri Matthíasar Þorfinnssonar.

Mynd 34

Óþekkt kona. Í bakgrunni sjást veggskreytingar á heimilinu.
Aftan á myndina er skrifað:
"Á heimili vinkonu minnar hún tók myndina. 1952."

Mynd 33

Á myndinni er Stefanía Magnússon, sem bjó í Gimli í Manitoba, ásamt óþekktri konu og þremur óþekktum karlmönnum.
Aftan á myndina er skrifað:
"Ég sendi mynd af mér 85 ára ég er kerlingin í svarta kjólnu við eigum öll afmæli í feb. Mrs. Stefanía Magnússon, Box 10, Gmili P.O. Manitoba Canada."

Mynd 32

Á myndinni er Steinunn Jónsdóttir frá Syðstu-Grund ásamt hluta af fjölskyldu sinni í Vesturheimi.
Aftan á myndina er skrifað:
"Til vinstri í efri röð. Jóna yngsta dóttir mín, Svan Ingi fóstursonur minn. Ég sjálf. Steinunna Jónsdóttir. Anna næst yngsta dóttir mín. Tvíbura dætur hennar Svanna Steinunn og ...." (meira sést ekki af textanum þar sem límmiði hefur verið límdur ofan á textann).

Mynd 30

Átta manna hópur, sitjandi fyrir framan hús. Fólkið er óþekkt.
Aftan á myndina er skráður texti en hann er ólæsilegur þar sem límmiði hefur verið límdur ofan í textann.

Mynd 3

Fólkið á myndinni er óþekkt en aftan á myndina eru ritaðar eftirfarandi upplýsingar.
"Frá vinstri til hægri. ?, Jóhanna kona mín, Margrét systir mín, Þorbjörg móðir mín, Florence dóttir Margrétar, Thorsteina, Sigríður dóttir mín, ég og yngsta dóttir mín."

Mynd 29

Karlmaðurinn í aftari röðinni er Sigurður J. Gíslason. Hitt fólkið er óþekkt.
Aftan á myndina er skrifað:
"Hún var nærri búin að dáleiða mig, þessi í brúnu kápunni. Karlamðurinn er úr Rvík og heitir Ólafur Guðmundsson. Við erum mikið saman. Stúlkurnar eru stystur. Myndin er tekin við ljós-bommu. Sigurður J. Gíslason."

Mynd 28

Þrír óþekktir karlmenn og ein kona fyrir framan hús.
Fólki á myndinni er óþekkt.
Aftan á myndina er skrifað:
Jón bróðir og Alli bróðursonur mömmu á bak við að framan mamma og Siggi bróðir."

Mynd 27

Ljósmynd í cab stærð.
Á myndinni eru óþekkt fjölskylda, hjón með fimm börn.
Tvær af stúlkunum gætu verið þær sömu og á mynd nr. 26.
Myndin er tekin á ljósmyndastofu í Winnipeg.

Guðmundur Trjámannsson

Mynd 27

Óþekkt kona. Háhýsi í bakgrunni.
Aftan á myndina er skrifað: "Tekið fyrir tveimur árum."

Mynd 25

Fólkið á myndinni er óþekkt. Bak við er bjálkahús og er hún tekin í Vesturheimi.
Aftan á myndina er skrifað:
"Back row from left ti right. Evelyn, Bobby, myself, Frank, Berniel, Vernaa, Alvin, Irene, Verla, Keith.
Baby Ruth not here. 1936."

Mynd 24

Tvær óþekktar konur með barn.
Aftan á myndina er skrifað:
"Þetta er mynd af konu Jósefs bróður míns, dreng þeirra og mér, tekin á flötinni framan við húsið okkar. Það sést á fram gluggana neðanverða. Þetta er tekið í sumar meðan ég var heima."

Results 1 to 85 of 143