Myndin er tekin í Winnipeg júní 1955. Aftan á hana er skrifað: "Þetta er Sargent Ave eða "Jeelanders main street" eins og það var einu sinni kallað. Þarna búa mjög margir ísl og stóra hvíta húsið til hægri er Ísl I.O.G.T. húsið séð vestur."
Tvílemba. Húsið sem sést vinstra megin gæti verið Skógargata 22 (Sigurhæðir). Myndin er líklega tekin í garðinum vestan við Suðurgötu 10. (ca. 1955-1960).
Sambandshúsið í Reykjavík, Sölvhólsgata 4. Aftan á myndina er skrifað: "Sambandshúsið í Reykjavík.Efsti glugginn á stafninum er á herberingu mínu og litli bærinn heitir Sölvhóll. Það er nokkuð áþekkt niður við sjóinn."
Íbúðarhúsið á Selnesi á Skaga. Húsið er byggt 1958. Vinstra megin sést gamli torfbærinn. Fyrir framan húsið standa Vilhjálmur Árnason og tveir óþekktir drengir.
Óþekkt fólk sem hefur stillt sér upp til myndatöku við húsvegg. Myndin er skemmd og einnig mjög dökk og því erfitt að greina bæði fólk og staðsetningu.
Ljósmynd í stærðinni 9 x9 sm. Svarthvít pappírskópía. Á myndinni eru, fv., húsin nr 20, 18 (Blöndalshús), 16 og 14 við Aðalgötu á Sauðárkróki. Þá sést í þak Aðalgötu 19. Myndin er líklega tekin af svölum húss nr 21 í við Aðalgötu.
Aðalgata 3, hús Ásgríms Sveinssonar og Hólmfríðar Jóhannesdóttur. Á svölunum standa Þorvaldur Þorvaldsson (Búbbi) t.v. og Ásgrímur Sveinsson t.h. Búið er að rífa húsið.
Myndin er tekin í Piumas 1954 Aftan á myndinni stendur: "Hveitigeymslurnar í Píumas, svona turnar eru í hverju þorpi, mismunandi margir þó, og oft mjög stórir."
Ljósmynd í stærðinni 10,2 x 6,4 sm. Svarthvít pappírskópía. Myndin er tekin af Nöfunum fyrir ofan Sauðárkrók. Fjallið Tindastóll í bakgrunni. Hægra megin við miðju er svokölluð Refakirkja og lengst til hægri sjást nokkur hús á Sauðárkróki.
Svarthvít mynd í stærðinni 13,7 x 9,5 sm, límd á bréfspjald (kabinent) merkt Sigfúsi Eymundssyni ljósmyndara. Á myndinni eru tíu karlmenn sem standa fyrir utan Hótel Tindastól.
Ljósmynd í stærðinni 10,2 x 6,4 sm. Svarthvít pappírskópía. Myndin er tekin af Nöfunum fyrir ofan Sauðárkrók. Sér m.a. yfir göturnar Suðurgötu og Skagfirðingabraut.
Myndin er tekin í Manitoba 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þinghúsið í Manitoba. Þetta er mjög fallegt hús og fyrir framan tröppurnar sést minnismerki af Viktoríu drottningu. Í garðinum er stittan af Jóni Sig."
Myndin er tekin í Manitoba 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er tekin inní andyri Þinghússins. Þessi vísundur er í fullri stærð og annar stendur hinu megin við stigann. Þeir eru baðir úr bronsi, en annars er húsið allt úr steini."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er tekin niður aðalgötu Winnipeg-Portage. Dökka húsið niður með götunni með hvíta skúrnum á þakinu (með tvo svarta depla) er Eaton verslunin. Hendson Bayrslunin sést ekki, hún er nær okkur, sömu megin."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er nú ekki af neinni sérstakri götu, en svona eru allar íbúðar göturnar. í Wpeg.Húsin eru lítil en falleg, og ot engin girðing fyrir framan þau, svo kemur gangstjettin milli hennar og göturnar eru breiður grasivaxinn bali með einfaldri trjáröð. Það eru aldrei neinar búðir við þessar götur heldur aðeins á götunum sem skera þær."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna í dyrunum á Fort Garry virkinu. Þetta hlíð stendur til minja um þetta stóra virki og það eina sem eftir er af því. Það stóð þar sem miðborg Wpeg er nú."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna upp við trjábút sem Kobbi sýndi okkur einu sinni þegar við vorum ða komu úr "stéttarbaráttunni". Hann er hafður þarna til sýnis. Það ar fellt 1929 og var það þá 687 ára. Það má glöggt sjá árshringina, og svo hafa þeir merk inn á (hvítu strikin). Það var þetta gamalt þegar Columbus fann Ameríku og önnur merkileg ártöl. Það er um 6 fet í þvermál, frá British Columbia."