Showing 99 results

Archival descriptions
Lausavísur
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

6 results with digital objects Show results with digital objects

Minningar

I. Sagnaþættir, vísnamál og umsagnir eftir Jón Sveinsson frá Þangskála. Minningar. Ehdr.
Hefst á frásögn um Bólu-Einar(Einar Andréssoní Bólu) og "ferhendugerð nokkurra hagyrðinga".
Nafngreindir höfundar:
Ásgrímur Jónsson (bróðir Baldvins skálda).
Baldvin Jónsson skáldi.
Björn Schram.
Sr. Hallgrímur Thorlacius, Glaumbæ.
Holm, faktor, Hofsósi.
Jón Árnason, Víðimýri.
Jón Gottskálksson Skagamannaskáld frá Selá, Skaga.
Jónas Jónsson, Hróarsdal.
Sigurður Jónsson, Hróarsdal.
Sigurður Víglundsson, Selnesi, Skaga.
Sigvaldi Jónsson Skagfirðingur.
Skúli Bergþórsson, Kálfárdal.
Sr. Tómas Þorsteinsson, Brúarlandi.
II. Minningar og slysaþættir. Umsögn um bændur í Fagranessókn og aðallega frásagnir af Reykstrendingum varðandi svaðilfarir, verslun, Drangeyjarútveg. "Skemmtanir sjómanna á haustvertíðum fyr meir".
"Dulrænar sagnir". : Um Eirík Skagadraug, Baladrauginn, Skyggnir menn.

Vísur

Vísur eftir Ingimar Magnússon frá Ytri-Hofdölum.
Vísurnar eru handskrifaðar á 4 pappírsarkir í A5 stærð, með rithönd Marteins Steinssonar.
Ástand skjalsins er gott.

Marteinn Bergmann Steinsson (1909-2004)

Páll Sigurjónsson: Skjalasafn

  • IS HSk N00113
  • Fonds
  • 1930-1990

Gögn úr dánarbúi Páls Sigurjónssonar sem var um tíma bóndi á Ingveldarstöðum. Annars vegar reikningar og kvittun varðandi búrekstur sinn á Ingveldarstöðum. Hins vegar kveðskapur ýmis konar.

Páll Sigurjónsson (1917-2004)

Já eða Nei - Vísnaþáttur

Já eða Nei - Vísnaþáttur. Stjórnandi Sveinn Ásgeirsson Hagfræðingur.
Braglistarmenn: Guðmundur Sigurðsson, bókari, Helgi Sæmundsson, ritstjóri, Karl Ísfeld, rithöfundur og Steinn Steinarr, skáld. Útgefandi: Steindórsprent H.f.
61 blaðsíða auk auglýsinga

Kveðskapur

Vísa sem kveðin er til Egils Bjarnasonar, starfsmann Búnaðarsamband Skagfirðinga. Höfundur óþekktur. Vísan hljóðar svo:
Ekki mér á Egil lýst,
aldraðan og gráan.
Mikið hefur Bjartur breyst
til batnaðar að sjá'ann.

Vísur

4 pappírsarkir með lausavísum. Á sumum þeirra er einnig búið að rissa upp teikningar eða einhvers konar útreikninga. Flestar vísnanna eru án höfundar.

Gunnar Valdimarsson (1907-1975)

Vísur á lausum blöðum

Handskrifaðar vísur, eftir Guðmund Inga, Mig langar uppí sveit. Vísa þar sem ekki er getið höfundar sem byrjar svona Jólasveinar fara um fjöll. Blað þar sem Sigurjón Jónasson er tilgreindur höfundur á 3 blaðinu en þar eru 2 vísur: Haustvísur og Spóinn

Kristrún Skúladóttir (1902-1979)

Minnisbók

Bók sem safnað hafa verið vísur og ýmsar setningar. Sumum stöðum skrifað á dönsku. Einnig má finna bókhald eða kosnað vegna ferðalags. Vísur sem ekki eru höfundar af.

Sigurður Jóhann Gíslason (1893-1983)

Dagbókaslitrur

Slitrur af því sem Sigurður var að gera árið 1913-1915, dagsetningar, laun og kostnaður. Einnig eru tvær vísur eftir Pál Ólafsson sem þekktar eru: Vonin styrkir... og Vonin mér í brjósti....
Og tvær vísur eftir Mikel Gillisson , Hálsi http://bragi.info/skag/visur.php?VID=15917
Einnig er vísa sem er illskyljanleg eftir Mikel.

Sigurður Jóhann Gíslason (1893-1983)

Viðar 4. bók

Viðar, sveitablað sem gefið var út í Viðvíkurhreppi á árunum 1914-1916. Þetta blað fjallar m.a. um verslun á Íslandi, Um lestarfélagsskemmtun, grein um Böð eða sund, sögur, ævintýri og kveðskapur ýmis konar. Þá er kafli um tóbak. Inn í þann kafla hefur verið sett skjal eitt með undirskrift þeirra sem ætla að sniðganga slík efni. Þetta er undirritað 3. mars 1911 og hefur líklega verið bundið inn í þessa bók.

1.töl.1.árg.

Ritstjóri Jón Eiríksson. Penninn sem var notaðar til að skrifa hefur smitað út frá sér.

Stefán Jónsson (1892-1980)

15.töl.1.árg.

Í þessu blaði stendur; "Gaman og Alvara keur út á hálfsmánaðar fresti um 6. blöð í senn. Blaðið flytur sögur, kver, stöku, ritgerðir, skrítlur, spurningar og svör, vísuparta og botna o.m.m. fl. sem allt er vandað bæði að efni og búningi. Ekkert blað á landinu fjallar um eins mörg málefni og þetta blað þrátt fyrir hina mörgu erfið leika sem það á við að stríða áður en það getur komið fyrir almenningssjónir. Undir þetta skrifar ritstjóri.

Stefán Jónsson (1892-1980)

Gaman og alvara 3. bók

Sveitablaðið Gaman og alvara, gefið út í Akrahreppi 1916-1919. Gefið út af tilhlutan nokkra ungra manna. Ritstjóri Hannes Magnússon og á seinni tölublöðum Jón Eiríksson.

Stefán Jónsson (1892-1980)

Gaman og alvara 2. bók

Í fyrir bók stendur: Í þessu blaði stendur; "Gaman og Alvara kemur út á hálfsmánaðar fresti um 6. blöð í senn. Blaðið flytur sögur, kver, stöku, ritgerðir, skrítlur, spurningar og svör, vísuparta og botna o.m.m. fl. sem allt er vandað bæði að efni og búningi. Ekkert blað á landinu fjallar um eins mörg málefni og þetta blað þrátt fyrir hina mörgu erfiðleika sem það á við að stríða áður en það getur komið fyrir almenningssjónir. Undir þetta skrifar "ritstjóri".

Stefán Jónsson (1892-1980)

Results 1 to 85 of 99