Við brú yfir Affallann. Í forgrunni eru tveir vegavinnumenn með verkfæri, Felix Jósafatsson t.v. og Björn Gíslason. Glóðafeykir í baksýn t.v. Mynd 1928.
Vegamenn 1928. Líklega við Grófargil. F.v. Markús og Vigfús Sigurjónssynir, Reykjarhóli, Steingrímur Friðriksson, Björn Gíslason, Jónas Gunnarsson, Hátúni.
Heimilisfólkið á Syðri-Húsabakka. F.v. Jóhanna Rannveig Pétursdóttir f. 1909, d. 1993, vinnukona, óþekkt eldri kona, Jón Kristinn Jónsson, bóndi, Kristín Sigurðardóttir, húsfreyja. Börn hjóna, Sigurður og Lilja fremst. Mynd 1927.
Vinnsla í sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Vélarnar á myndinni eru svokallaðir mixarar. Fyrir miðri mynd eru Sigrún Guðmundsdóttir og Karl Bjarnason, hinir ónafngreindir.
Úr sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Lengst til vinstri er Þorbjörn Árnason, lengst til hægri Karl Bjarnason, en konan er ónafngreind. Viðskiptavinur að skoða ferlið.
Tveir óþekktir drengir og hundur. Tilgáta: Bræður Sigrúnar Mörtu Gunnarsdóttur. (Gunnar Sigurjónsson var afabróðir hennar og bjó á Ásvegi 14 á Akureyri.
Heimilisfólkið á Syðri-Húsabakka 1927. F.v. Jóhanna Rannveig Pétursdóttir, vinnukona, óþekkt kona, Jón Kristinn Jónsson, bóndi, Kristín Sigurðardóttir, húsfreyja, börn hjóna Sigurður og Lilja fremst. Héraðsvötn að baki.
Myndin er tekin við loðdýrabú Reynis Barðdal. F.v.: Reynir Barðdal, Þorbjörn Árnason, Pálína Skarphéðinsdóttir og Þórdís Þormóðsdóttir (fyrri kona Þorbjarnar).
Á Syðstu-Grund 1927. F.v. Efemía Halldórsdóttir, húsfreyja, Salóme Halldórsdóttir systir hennar, Gísli Gottskálksson sonur Salóme, Garðar Jónsson frá Mannskaðahóli, fóstursonur Efemíu, síðar skólastjóri á Hofsósi.
Vinnsla í Sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Efst á myndinni eru Jónheiður Sigurðardóttir og Halldóra Björnsdóttir. Framan við vagninn með gærunum eru f.v. Karl Bjarnason, Þorbjörn Árnason og ónafngreind kona. Lengst til hægri er Alexander Róbert Jónsson.
Á kaffistofu Sútunarverksmiðju Loðskinns. F.v.: Baldvin Þóroddsson (starfaði sem tæknimaður í Þýskalandi en fyrirtæki sem hann starfaði hjá seldi Loðskinn ýmis efni til framleiðslu sinnar), Karl Bjarnason, Þorbjörn Árnason, Oddur Eiríksson.
Fremst er unnið við svokallaða júmbóvél, sem var slípivél, þar við hliðina klippivél og innst strauvél. Í sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Starfsfólkið er ónafngreint.
Myndin er tekin á Stóru-Ökrum. F.v. Sigfús Stefánsson frá Bjarnastöðum, síðar í Flugumýrarhvammi, Árni Jónsson á Víðimel, Jón Agnarsson, sonur Agnars Baldvinssonar og Árnýjar Jónsdóttur, Garðar Jónsson, Syðstu-Grund, Friðjón Hjörleifsson, Ásgarði.
Vegamenn við Húseyjarkvísl 1928. F.v. Jón Eiríksson,Hjalti Jónsson, Valadal. Kristófer, Tjarnar-Óli, Haraldur Jónasson, Völlum. Kristján Hansen. Fremst er strákur, ágiskun Guðmundur Jónsson. Til hliðar sést í hest hægra megin og hjól á hestakerru vinstra megin.
Valný Georgsdóttir við affitunarvél í Sútunarverksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Höskuldur, eiginmaður Valnýjar, fylgdi Loðskinn við flutninginn norður og þau störfuðu þar til 1985.
Helga Sölvadóttir, f. 1859 á Kleif á Skaga, d. 1942 á Uppsölum. Móðir Ingibjargar Sigurðardóttur á Stóru-Ökrum og Bjarna Halldórssonar á Uppsölum. Hér er Helga með tvo sonarsyni sína, Halldór Bjarnason stendur hjá henni og Jónas Bjarnason í fangi ömmu sinnar.
Vegamenn losa efni og moka á hestakerru, hjá Grófargili. Líklega glittir í Hotstjörn vinstra megin við hakann. F.v. Steinþór Skörðugili. Flóvent. Haraldur Albertsson. Gissur Jónsson, Valadal, Hjalti Jónsson, Valadal. Jón Helgason, Geldingaholti. Mynd 1928.
Börn Ingibjargar Björnsdóttur og Egils Gottskálkssonar í Hjaltastaðakoti 1928. Bjuggu seinna á Miðgrund. Dæturnar f.v. (Magnea) Sigríður f. 1917. Oddný f. 1916. Guðlaug f. 1920. Synirnir eru Gottskálk f. 1921. Steingrímur f. 1924. Árni Helgi Hólm fremstur, f. 1926.