Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar kosningu í nefnd til undirbúnings landbúnaðarsýningar í tengslum við Alþingishátíðina. Með liggur eyðublað þar sem viðtakandi er beðinn um að taka sæti í nefndinni. Ástand skjalanna er gott.
Álitið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar héraðshátíð í Garði í Hegranesi 1930. Ryðskemmd eftir bréfaklemmu er á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls 3 skrifaðar síður. Það varðar hugmyndir bréfritara um hátíðahöld og önnur verkefni í tilefni af 1000 ára afmæli byggðar í Skagafirði.
Myndir í þessari myndaseríu (353) þ.e. 20 myndir eru frá 50 ára afmæli Sögufélags Skagfirðinga árið 1987 sem haldið var í Safnahúsinu á Sauðárkróki þar sem um 200 manns mættu. Formaður Sögufélagsins er Hjalti Pálsson. Mynd 1 Friðrik Mrageirsson.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar gjöf vegna starfa varðandi alþingishátíðina. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í foliobroti. Það varðar hugmyndir skagfirsku ungmennafélaganna um hátíðaröld á 100 ára afmælisdegi Jóns Sigurðssonar.
Bréfið er handskrifað á 2 pappírsarkir í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar uppgjör vegna Alþingishátíðarinnar. Ástand skjalsins er gott.
Á myndinni er tjaldborg og nokkur hús í baksýn, sem standa nærri sjó. Einnig sést fólk fremst á myndinni. Aftan á myndina er ritað "Hraungerði?". Tilg. að um sé að ræða Hraungerði í Vestmannaeyjum.
Minnisblaðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það er gefið út af framkvæmdastjóra Alþingishátíðar og varðar "Nokkur atriði til athugunar fyrir héraðsnefndirnar." Ástand skjalsins er gott.
Grein skrifuð í tilefni af 75 ára afmæli UMSS þar sem farið er yfir sögu félagsins. Greinin var send riti ÍSÍ það sama ár en var ekki birt fyrr en 1987 og þá mjög stytt.
Minnisblaðið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Líklega rithönd Sigurðar Sigurðssonar sýslumanns. Það varðar ýmsan undirbúning fyrir Alþingishátíðina. Ástand skjalsins er gott.
Sögufélagið 50 ára 1987. Hátíð haldin í Safnahúsinu, þar sem um 200 manns mættu . Sjá 01. Þekkja má f.v. Guðmundur Sigurður Jóhannsson ættfræðingur, Fjóla Sveinsdóttir, Gísli Gunnarrson, Guðmundur Vilhelmsson Sævarlandi (með sólgleraugu) og Aðalheiður Árnadóttir.
Bréfið er handskrifað á 1 pappírsörk í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Með liggur önnur vélrituð pappírsörk í folio stærð. Það varðar uppgjör vegna Alþingishátíðarinnar. Ástand skjalsins er gott.
Myndin er teiknuð og lituð á pappírsörk í A4 stærð. Með liggur handskrifað bréf í A4 stærð, undirritað af Tryggva Magnússyni. Fram kemur að hann sé höfundur myndanna og einnig að hann hafi sent frá sér tvær aðrar tillögur. Myndin sýnir merki Skagafjarðar teiknað á fána. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Með liggur annað samhljóða afrit. Það varðar uppgjör vegna Alþingishátíðarinnar. Ástand skjalsins er gott.
Handskrifuð pappírsörk í folio broti. Nafnalisti eða einskonar gestabók varðandi gistingu í tjaldborg á Alþingishátíðinni á Þingvöllum. Ástand skjalsins er gott.
Sögufélagið 50 ára 1987. Sjá 01. Leikarar úr Leikfélagi Sauðárkróks leiklesa úr verkum félagsins. F.v. Kristján Skarphéðinsson, Hilmir Jóhannesson, Haukur Þorsteinsson, Helga Hannesdóttir, Erling Pétursson og Hulda Jónsdóttir (bak við).
Tillagan er teiknuð á pappírsörk í folio stærð. Með liggur póstkort með mynd af Draney, ritað af Ólafi Jóhannessyni á Naustum. Ástand teikningarinnar er gott. Á póstkortinu er svartur blettur, sennilega brunablettur.
Sögufélagið 50 ára 1987. Samkoma í Safnahúsinu þar sem um 200 manns voru. Þekkja má f.v. Björn Egilsson Sveinsstöðum, Friðrik Friðriksson, Tryggvi Guðlaugsson Lónkoti og Steingrímur Friðriksson. ,
Sögufélagið 50 ára 1987. Fagnaður haldin í Safnahúsinu þar sem um 200 mann mættu. Þekkja má framan frá. Friðrik Margeirsson, Eggert Ólafsson, Edda Þórarinsdóttir, Inga Valdís Tómasdóttir, Sæmumdur Hermannsson og Stefán Gestsson.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar þátttöku í Alþingishátíðinni á Þingvöllum. Neðst er nafnalist og er bréfinu ætlað að berast frá Ketu að Hrauni. Ástand skjalsins er gott.
Sögufélagið 50 ára 1987. Samkoma í Safnahúsinu þar sem komu um 200 manns. Sjá 01. T.v. Sr. Hjálmar Jónsson og Signý Bjarnadóttir. T.h. við borðið framan frá. Guðrún Rafnsdóttir, Sigríður Ögmundsdóttir, Árni Jónsson, Páll sigurðsspn og Andrés Valberg.
Sögufélagið 50 ára 1987. Samkoma haldinn í Safnahúsinu þar sem um 200 mann mættu. Sjá 01. Við borðið næst f.v. Sigurjón Björnsson sálfræðingur og svo bræðurnir Hróðmar og Friðrik Margeirssynir.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar uppgjör vegna Alþingishátíðarinnar. Með liggur reikningur fyrir tjaldaleigu. Ástand skjalsins er gott.
Tvær opnur úr Morgunblaðinu sem varða Alþingishátíðina. Önnur er úr Lesbók Morgunblaðsins13.11.1927 og ber yfirskriftina "Alþingishátíðin 1930. Helstu fyrirætlanir alþingisnefndarinnar." Hin er úr Morgunblaðinu 26. maí 1929 og ber yfirskriftina "Undirbúningur alþingishátíðarinnar." Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar niðurstöður fundar um Alþingishátíðina. Ástand skjalsins er gott.
Sögufélagið 50 ára 1987. Samkoma í Safnahúsinu, um 200 manns mættu. Sjá 01. Leikarar úr Leikfélagi Sauðárkróks voru með leiklestur úr verkum safnsins. F.v. Kristján Skarphéðinsson, Hilmir Jóhannesson, Helga Hannesdóttir, Erling Örn Pétursson, Elsa Jónsdóttir og Hulda Jónsdóttir.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar greiðslu fyrir tjaldleigu á Þingvöllum fyrir gesti frá Sauðárkróki. Ástand skjalsins er gott.