Showing 41 results

Archival descriptions
Karlakór Sauðárkróks: Skjalasafn
Print preview Hierarchy View:

Sauðákrókur 18.02.1965

Efni bréfs: Stjórn og fjáröflunarnefnd Verkamannafélagsins Fram spyr Karlakór Sauðárkróks hvort kórinn hafi áhuga á samstarfi um skemmtanir í Bifröst í Sæluvikunni.
Handskrifaðar undirskriftir: Kári Steinsson og Friðrik Sigurðsson.
Bréfið er merkt með stimpli Verkamannafélagsins Fram.

Sauðárkrókur 20.02.1965

Efni bréfs: Stjórn Verkamannafélagsins Fram og fjáröflunarnefnd óska eftir skriflegu svari við bréfi því er varðar þátttöku kórsins í skemmtanahaldi í Sæluvikunni.
Bréfið er stílað á formann Karlakórs Sauðárkróks og undirritað af Kára Steinssyni, ritara Verkamannafélagsins Fram.

Akureyri 02.12.1967

Efni bréfs: Varðar söngmót, styrkbeiðnir o.fl. Meðfylgjandi er fundargerð aðalfundar Heklu, sambands norðlenskra karlakóra.
Undir bréfið skrifa Áskell Jónsson, formaður og Árni Jóhannesson, gjaldkeri.

Sauðárkrókur 11.04.1981

Efni bréfs: Varðar námskeið Ingu Maríu Eyjólfsdóttur, en hún leiðbeindi kórnum í söng.
Bréfið er stílað á Hekla, samband norðlenskra karlakóra/Eggert Jónsson, formaður, Akureyri.
Handskrifuð undirskrift: Guðmundur Ó. Guðmundsson, gjaldkeri.

Sauðárkrókur 21.04.1980

Efni bréfs: Karlakór Sauðárkróks þiggur boð Samkórs Sauðárkróks um að taka þátt í kóramóti í Miðgarði. Handskrifuð undirskrift Guðmundar Ó. Guðmundssonar, gjaldkera Karlakórs Sauðárkróks. Bréfið er stílað á Samkórs Sauðárkróks/Haukur Björnsson.

Fylgiskjöl 1980

Bókhald 1980. Varðar m.a. árshátíð, kóramót, félagagjöld og tryggingar.
Bréf til Samkórs Sauðárkróks varðandi kóramót má sjá í bréfasafni (B). Söngdagskrá kóramóts er í ýmsum gögnum (D).
Meðfylgjandi eru hugleiðingar gjaldkerans Guðmundar Ó. Guðmundssonar í tilefni af lokahófi Karlakórs Sauðárkróks. Vélrit dagsett 05.05.1980.

Fylgiskjöl 1981

Bókhald Karlakórs Sauðárkróks árið 1981. Meðal gagna eru kvittanir fyrir auglýsingar í Sjónhorninu, fyrir myndatöku í Pedersen, ljósmyndaþjónustu, sparisjóðsbækur, árgjöld, þátttaka í árshátíð.
Meðfylgjandi er: Drög að bréfi varðandi fjárstyrk, gíróseðill vegna brunatryggingar á píanói kórsins, peningagjöf Ingimars Pálssonar og Halldóru Hreimsdóttur (ath) og hugleiðingar Guðmundar Ó. Guðmundssonar gjaldkera vaðandi árshátið kórsins.
Bréf frá Heklu, sambandi norðlenskra karlakóra var sett í bréfasafn kórsins (B) og efnisskrá samsöngs í Bifröst var sett í ýmis gögn (D) og sömuleiðis jólakort frá Hilmari Sverrissyni.

Karlakór Sauðárkróks: Skjalasafn

  • IS HSk N00067
  • Fonds
  • 1936 - 2012

Fundagerðabók, bókhald og önnur skjalgögn Karlakórs Sauðárkróks.

Karlakór Sauðárkróks (1963-2012)