Foreldrar: Davíð Guðmundsson, prestur og alþingismaður á Felli og síðar prófastur á Hofi í Hörgárdal og kona hans Sigríður Ólafsdóttir, f. 1839. Guðmundur ólst upp með foreldrum sínum og fékk hjá þeim uppfræðslu. Varð gagnfræðingur frá Möðruvallaskóla 1883. Vann að búi foreldra sinna næstu árin en reisti síðan bú með konu sinni að Hofi í Hörgárdal og bjó þar móti föður sínum 1892-1896. Bóndi á Hraunum í Fljótum 1896-1918, er Einar sonur hans tók við búsforráðum. Hafði ýmis trúnaðarstörf á hendi, m.a. hreppstjóri Holtshrepps 1889-1938, sýslunefndarmaður Holtshrepps 1898-1904 og 1906-1919. Var ritari sýslunefndar um áratuga skeið. Sat í Fasteignamatsnefnd Skagafjarðar. Formaður Kaupfélags Fljótamanna í 10 ár og Sparisjóðs Fljótamanna í 22 ár. Átti sæti í hreppsnefnd og var forgöngu- og stuðningsmaður allra helstu félags- og menningarmála í sveitinni. Guðmundur lagði mikla stund á að efla æðarvarpið á Hraunum og fann upp dúnhreinsunarvél sem hann notaði til þæginda og vinnusparnaðar. Safnaði þjóðlegum fróðleik og ýmsu er tengdist sögu Skagafjarðar.
Maki: Ólöf Einarsdóttir frá Hraunum í Fljótum. Ólöf var bústýra Einars sonar síns fram á gamals aldur, er hún flutti til Reykjavíkur. Einar var eina barn þeirra hjóna sem náði fullorðinsaldri.
Published
Partial
Final
HSk
IS-HSk
Published
Bréfspjald frá versluninni Haraldi Árnasyni með dagatali ársins 1921, stílað á Guðmund Davíðsson.
Published
Bréfspjald frá versluninni Haraldi Árnasyni með dagatali ársins 1922, stílað á Guðmund Davíðsson og samskonar spjald stílað á Einar Guðmundsson.
Published
Bréfspjald (jólakort) til Davíðs Guðmundssonar á Hraunum frá Geira á Hesteyri.
Published
Bréfspjald frá Kristjáni O. Skagfjörð, stílað á hreppstjórann í Holtshreppi. Framan á spjaldinu er auglýsing fyrir skilvindu.