Valdimar Helgi Guðmundsson, f. 25.03.1877 á Myrká í Hörgárdal. Foreldrar: Guðmundur Jónsson, bóndi á Bási í Hörgárdal og víðar og kona hans Lilja Gunnlaugsdóttir. Valdimar fór ungur úr foreldrahúsum til móðurbróður síns, Jóhanns í Flöguseli og var þar fram yfir fermingu. Stundaði svo vinnumennsku í nokkur ár. Hóf búskap á Bessahlöðum í Öxnadal. Fluttist að Efra-Rauðalæk á Þelamörk 1905. Á yngri árum fékkst Valdimar við nautgripakaup fyrir Kaupfélag Eyfirðinga og eitt vorið rak hann í einni ferð um 30 naut, mörg fullorðin og mannýg, í einni ferð niður yfir heiði til Akureyrar. Með honum í för var aðeins Guðmundur sonur hans, þá innan við fermingu. Árið 1910 fluttist hann ásamt konu sinni, Arnbjörgu Guðmundsdóttur, að Fremri-Kotum og bjuggu þau þar til 1924. Keyptu þá jörðina Bólu og fluttu þangað og bjó Valdimar þar lengst af síðan, síðast hjá Guðmundi syni sínum. Valdimar og Arnbjörg eignuðust tvo syni og eins fósturdóttur.
Published
Partial
Final
HSk
IS-HSk
Línustrikuð pappírsörk sem á eru ritaðar ýmsar athugasemdir. Á hálfa örðina öðru megin er búið að rita nokkrar spurningar en strika yfir þær aftur.