Published
Bandalag íslenskra leikfélaga (skammstafað BÍL) er samtök áhugaleikfélaga á Íslandi. Samtökin voru stofnuð árið 1950 og var Ævar Kvaran helsti hvatamaðurinn að stofnun þeirra.
Bandalagið rekur Þjónustumiðstöð að Kleppsmýrarvegi 8 í Reykjavík. Þjónustumiðstöðin sinnir ýmsum málum fyrir áhugaleiklistarhreyfinguna en einnig er þar almenn þjónusta við leikhús og leikhópa af öllu tagi. Þar er m.a. stærsta leikritasafn landsins. Bandalagið hefur starfrækt leiklistarskóla síðan árið 1997 til að byrja með að Húsabakka í Svarfaðardal en skólinn flutti árið 2010 í Húnavallaskóla og árið 2017 í Reykjaskóla í Hrútafirði.
Published
Bréfið er vélritað á fjórar pappírsarkir í A4 stærð og inniheldur leikritaskrá Bandalagsins. Meðfylgjandi er umslag, merkt Bandalaginu.