Akrahreppur (áður kallaður Blönduhlíðarhreppur) er syðsti hreppur Skagafjarðarsýslu austan héraðsvatna. Greina má hreppinn í fjögur byggðarlög; Blönduhlíð, frá hreppamörkum við Viðvíkursveit um Kyrfisá að Bóluá; Norðurárdal frá Bóluá að Valagilsá; Kjálka frá Norðurá inn með Héraðsvötnum að Grjótárgili ; Austurdal frá Grjótárgili inn til öræfa; nokkur býli í Vallhólmi tilheyra einnig Akrahreppi. Akrahreppi þótt þau séu nú vestan Héraðsvatna, sem hafa breytt um farveg á þessum slóðum. Víðlend afréttarlönd tilheyra sveitarfélaginu, Silfrastaðaafrétt og Nýjabæjarafrétt.
Aðalatvinnuvegur er landbúnaður og er ekkert þéttbýli í sveitarfélaginu. Grunnskóli hreppsins var á Stóru-Ökrum, í félagsheimilinu Héðinsminni, frá 1949 til 2006 en í kjölfar deilna milli foreldra og kennara var hann lagður niður og síðan hefur nemendum verið ekið í skóla í Varmahlíð. Fjórar kirkjur eru í Akrahreppi, á Flugumýri, Miklabæ, Silfrastöðum og Ábæ í Austurdal en Ábæjarsókn er nú öll í eyði. Lítils háttar jarðhiti er á nokkrum stöðum í Akrahreppi og var byggð sundlaug á Víðivöllum árið 1938, sem ekki er lengur í notkun. Nú hefur hitaveita verið lögð frá Varmahlíð um mestalla Blönduhlíð.
Published
Partial
Final
KSE
IS-HSk
Bréfið er vélritað á bréfsefni Varmahlíðarskóla. Það er undirritað af framkævmdanefnd og oddvitum Akrahrepps og Seyluhrepps. Bréfið er ein vélrituð bls og með liggur afrit af vinnusamningi, afrit af bréfi til Menntamálaráðuneytis og útdráttur úr fundargerðum bygginarnefndar. Öll eru þessi skjöl frá árinu 1979.