Kolbeinn Kristinsson, f. á Þúfum í Óslandshlíð en fluttist ásamt foreldrum sínum að Skriðulandi í Kolbeinsdal 1897. Foreldrar: Kristinn Sigurðsson (1863-1943) og Hallfríður Jónsdóttir (1858-1951). Kolbeinn tók fyrst við parti af búinu á Skriðulandi en svo allri jörðinni þegar faðir hans lést 1943. Kolbein bjó í 3 ár á Hofi en fluttist aftur að Skriðulandi. Hann fór þaðan alfarinn árið 1955. Þá flutti hann til Akureyrar og vann á fjórðungssjúkrahúsinu við skrifstofustörf og sem gjaldkeri. Frá Akureyri flutti hann til Sauðárkróks og bjó í tvö ár þar og vann við skipaafgreiðslu hjá Kaupfélaginu. Loks flutti hann til Reykjavíkur þar sem hann fékk ígripavinnu hjá Finni Sigmundssyni á Þjóðskjalasafninu. Maki: Kristín Guðmundsdóttir (1898-1981). Þau eignuðust tvær dætur.