Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Kristján Árnason (1934-2018)
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
- sept. 1934 - 28. júlí 2018
History
,,Kristján var skáld, þýðandi og dósent í bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Kristján er einna þekktastur fyrir þýðingar sínar, og þýddi m.a. Ummyndanir eftir Óvidíus, Ilminn eftir Patrick Süskind, Raunir Werthers unga eftir Goethe, Hinsta heim eftir Christoph Ransmayr og Felix Krull; játningar glæframanns eftir Thomas Mann. Foreldrar Kristjáns voru Árni Kristjánsson píanóleikari og tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins og Anna Guðrún Steingrímsdóttir. Kristján lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953. Hann lauk BA-próf í grísku og latínu frá Háskóla Íslands árið 1962 og nam heimspeki, bókmenntir og fornmál við háskóla í Þýskalandi og Sviss á árunum 1953-1958 og 1963-1965. Hann starfaði m.a. sem kennari við Menntaskólann á Akureyri og Kennaraskóla Íslands á sjöunda áratugnum og Menntaskólanum að Laugarvatni frá 1967-1990. Frá 1973 var hann kennari við Háskóla Íslands. Fyrri eiginkona Kristjáns var Kristín Anna Þórarinsdóttir leikkona en hún lést árið 1988. Þau eignuðust þrjú börn. Seinni kona Kristjáns var Inga Huld Hákonardóttir sagnfræðingur. Árið 2010 hlaut Kristján Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir þýðingu sína á Ummyndunum eftir Óvid."
Places
Legal status
Functions, occupations and activities
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
General context
Relationships area
Access points area
Subject access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Maintained by
Institution identifier
IS-HSk
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Partial
Dates of creation, revision and deletion
07.03.2019. Frumskráning í AtoM. ES.
Lagfært 18.11.2020. R.H.
Language(s)
- Icelandic