Identity area
Reference code
Title
Date(s)
- 1965-1977 (Creation)
Level of description
Item
Extent and medium
Ein stafræn hljóðritun
Context area
Name of creator
Biographical history
Kristmundur fæddist á Reykjum í Tungusveit 10. janúar 1919. Foreldrar hans voru Kristín Sveinsdóttir og Bjarni Kristmundsson en fósturforeldrar voru sr. Tryggvi H. Kvaran á Mælifelli og Anna Gr. Kvaran. ,,Kristmundur gekk hefðbundna skólagöngu í heimahéraði en lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1940. Frá árinu 1949 var Kristmundur bóndi á Sjávarborg og stundaði fræðimennsku og ritstörf meðfram bústörfum. Hann varð fyrsti héraðsskjalavörður Skagfirðinga og sinnti því starfi allt til ársins 1990. Kristmundur skilur eftir sig fjölda ritverka. Þegar á námsárum sínum fékkst hann við þýðingar á barna- og unglingabókum og má þar nefna bókaflokka eftir Enid Blyton og söguna af Stikilsberja-Finni eftir Mark Twain. Umfangsmesti hluti ritstarfanna var helgaður sagnfræði og þjóðlegum fróðleik. Af viðamiklum verkum Kristmundar má nefna, án uppröðunar: Saga Þorsteins frá Skipalóni, Jón Ósmann ferjumaður, Saga Sauðárkróks til ársins 1947, Saga Dalvíkur, Sýslunefndasaga Skagafjarðar, Svipmyndir úr sögu Gríms Thomsen, Sauðárkrókskirkja og formæður hennar, auk ótölulegs fjölda greina í blöðum og tímaritum. Síðasta stórvirki Kristmundar var ritverkið Amtmaðurinn á einbúasetrinu, ævisaga Gríms Jónssonar, amtmanns á Möðruvöllum, sem kom út á 90 ára afmæli hans. Í tilefni 100 ára afmælis Kristmundar gaf Sögufélag Skagfirðinga út bernskuminningar hans, Í barnsminni - minningaslitur frá bernskuárum. Kristmundur var heiðursfélagi Sögufélags Skagfirðinga og hlaut margar viðurkenningar fyrir sín störf, m.a. Viðurkenningu Hagþenkis og Samfélagsverðlaun Skagafjarðar." Eiginkona Kristmundar var Hlíf Ragnheiður Árnadóttir frá Sjávarborg, þau eignuðust þrjú börn.
Repository
Archival history
Immediate source of acquisition or transfer
Content and structure area
Scope and content
Kristmundur Bjarnason ræðir við Harald Jónasson Völlum. Heyrist ágætlega en vantar framan á viðtalið.
Appraisal, destruction and scheduling
Accruals
System of arrangement
Conditions of access and use area
Conditions governing access
Conditions governing reproduction
Language of material
Script of material
Language and script notes
Physical characteristics and technical requirements
Finding aids
Allied materials area
Existence and location of originals
Existence and location of copies
Related units of description
Notes area
Alternative identifier(s)
Access points
Subject access points
Place access points
Name access points
- Haraldur Jónasson (1895-1978) (Subject)