Var skólastjóri bæði á Sauðárkróki og Hofsósi. Kvæntur Birnu Sigurbjörgu Guðjónsdóttur.
Kári Jónsson fæddist á Sauðárkróki 27. október 1933. ,,Hann var sonur Jóns Björnssonar verslunarmanns, sem lengi stýrði Ytribúð Kaupfélags Skagfirðinga (Gránu), og konu hans, Unnar Magnúsdóttur. ,,Kári lauk gagnfræðaprófi á Sauðárkróki vorið 1950 og gerðist síðan afgreiðslumaður í verzlun Haraldar Júlíussonar. Árið 1954 fór Kári ásamt vini sínum til Kanada og vann þar meðal annars við ríkisjárnbrautirnar. Eftir heimkomuna hóf hann aftur störf hjá Haraldi og vann þar til ársins 1959 en réðst þá til Verzlunarfélags Skagfirðinga. Í maímánuði 1966 hóf hann störf hjá Pósti og síma á Sauðárkróki og starfaði þar meðan kraftar entust. Hann varð fulltrúi stöðvarstjóra 1974 og skipaður stöðvarstjóri 1983." Kári kvæntist Evu Snæbjörnsdóttur, þau eignuðust tvo syni.
Stefán Birgir Pedersen fæddist þann 7. desember 1936.
Hann var ljósmyndari á Sauðárkróki.
Stefán lést 9. september 2023.
Published
Partial
Final
SFA
IS-HSk
Myndir úr leikritum: Músagildran, Gullna hliðið, sem sýnt var árið 1965. Júnó og páfuglinn sýnt árið 1962. Þjófar, lík og falar konur sýnt árið 1967. Fædd í gær sýnt 1964.
Kemur úr dánarbúi Kára en hann hefur safnað leikfélagsmyndum frá Stefáni Pedersen.
Í skjalageymslu HSk.