"Héraðsvötn (oft stytt í Vötn eða Vötnin, en fyrr á öldum kölluð Jökulsá) er jökulá í Skagafirði og er eitt mannskæðasta vatnsfall á Íslandi. [1] Héraðsvötn verða til þegar Austari- og Vestari-Jökulsá koma saman neðan við bæinn Tunguháls, auk þess sem til þeirra renna Norðurá, Húseyjarkvísl og margar smærri ár. Í miðri Blönduhlíð skiptast Héraðsvötn síðan í tvær kvíslar sem renna til sjávar sitt hvoru megin við Hegranes. Kallast kvíslarnar Vestari- og Austari-Héraðsvötn."
"Herðubreið er 1682 metra hátt móbergsfjall norðan Vatnajökuls. Hún er í Ódáðahrauni og er oft nefnd „Drottning íslenskra fjalla“. ... Herðubreið var valin þjóðarfjall Íslendinga í kosningu árið 2002."