Foreldrar: Jón Stefánsson b. á Steinavöllum og k.h. Guðrún Sigmundsdóttir. Sem ungur maður vann hann að öllum algengum störfum til lands og sjávar. Hann var við sjóróðra haust og vor og þá stundum á hákarlaskipum. Hann var bóndi á Vestara-Hóli 1889-1941. Hann var um skeið í hreppsnefnd Haganeshrepps. Fyrri kona: Anna Helga Jónsdóttir (1863-1895), þau eignuðust fjögur börn. Seinni kona: Halldóra Baldvinsdóttir (1872-1955), sjö af börnum þeirra komust á legg.