Sverrir Sigurðsson Svavarsson fæddist 24. nóvember 1934 á Sauðárkróki. Foreldrar hans voru hjónin Svavar Sigpétur Guðmundsson og Sigurbjörg Ögmundsdóttir. ,,Sverrir ólst upp á Sauðárkróki og sem unglingur vann hann nokkur sumur í Varmahlíð, hjá Lindemann, sem rak þar hótel og bensínsölu. 18 ára að aldri fór hann að vinna á Keflavíkurflugvelli og síðan hjá Ísbirninum í Reykjavík og fleiri fyrirtækjum þar. Árið 1956 flutti hann aftur til Sauðárkróks og starfaði hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, m.a. í gömlu Gránu, Mjólkursamlagi KS og fleiri deildum Kaupfélagsins um árabil. Hann starfaði sem póstafgreiðslumaður hjá Pósti og síma allmörg ár áður en hann gerðist kirkjuvörður og útfararstjóri við Sauðárkrókskirkju. Eftir að hann hætti störfum vegna aldurs hafði hann ásamt Sigrúnu eiginkonu sinni umsjón með föndri eldri borgara í Safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju. Hann var einn af stofnfélögum Kiwanisklúbbsins Drangeyjar á Sauðárkróki og var virkur félagi til dauðadags. Hann var góður söngmaður og starfaði með Karlakór Sauðárkróks í mörg ár og einnig Kirkjukór Glaumbæjarsóknar. Hann var til margra ára félagi í Leikfélagi Sauðárkróks og Hestamannafélaginu Léttfeta á Sauðárkróki." Sverrir var tvíkvæntur. Hinn 5. júní 1955 kvæntist hann Sigurlín Ester Magnúsdóttur, þau skildu, eignuðust þau þrjá syni. Hinn 17. júní 1967 kvæntist Sverrir Sigrúnu Gíslu Halldórsdóttur frá Halldórsstöðum í Skagafirði, þau eignuðust þau tvö börn.