Sigurður var sonur Jóns Sigurðssonar oddvita og bónda á Skúfsstöðum og konu hans Guðrúnar Önnu Ásgrímsdóttur. Fór til náms á Búnaðarskólann á Hólum og var þar 1904 sem óreglulegur nemandi og lauk þar ekki prófi en kvæntist þá um haustið Önnu Margréti Sigurðardóttur frá Bakka í Viðvíkursveit. Þau hófu búskap á móti foreldrum Sigurðar árið 1906 á hluta Skúfstaða. Keyptu síðan jörðina árið 1915 og bjuggu þar til æviloka. Leigðu ábúendum jarðarhluta 1916-1924, en bjuggu eftir það ein á allri jörðinni. Sigurður tók þátt í ýmsum félagsstörfum í sveit sinni. Sigurður og Anna eignuðust fimm börn.
Published
Partial
Final
SFA
IS-HSk
Verðlaunaveitingar Hólaskóla, nefndir og ráð. Dagskrá skemmtunar
07.09.2017, yfirfarið, sup.
Í skjalageymslu HSk